Viðskipti innlent

Wow í vanskilum með iðgjaldaframlög

Birgir Olgeirsson og Nadine Guðrún Yaghi skrifa
Upplýsingafulltrúi WOW segir þetta hafa verið gert vegna lausafjárþrenginga flugfélagsins.
Upplýsingafulltrúi WOW segir þetta hafa verið gert vegna lausafjárþrenginga flugfélagsins. Vísir/Vilhelm
Wow air hefur ekki greitt mótframlagsgreiðslur í lífeyris- og séreignarsparnað síðustu þrjá mánuði og voru starfsmenn fyrst látnir vita í dag.

Í skriflegu svari til fréttastofu frá Svanhvíti Friðriksdóttur, upplýsingafulltrúa Wow air, segir að vegna skammtíma lausafjárþrenginga WOW air hafi félagið neyðst til þess að fresta mótframlagsgreiðslum í lífeyris- og séreignarsparnað síðustu þrjá mánuði. Hlutur starfsmanna hafi þó verið greiddur að fullu.

Þá segir að WOW air hafi verið í góðum samskiptum við lífeyris- og séreignasjóði. Gengið verði frá greiðslum í þessum mánuði. Starfsfólk WOW air hafi verið upplýst um stöðuna fyrr í dag.

„Þetta eru bara vanskil,“ segir Magnús M. Norðdahl, deildarstjóri lögfræðideildar Alþýðusambands Íslands, í samtali við fréttastofu um málið.

Hann segir þetta þó ekki hegningarlagabrot þar sem WOW air sé bara í vanskilum með sinn hluta. 

„Ef þeir hefðu ekki skilað því sem þeir drógu af starfsmönnum, hvort sem það er í séreign eða sameign, þá hefði það verið fjárdráttur,“ segir Magnús.

Fyrirtækjum ber skylda til að greiða iðgjaldaframlög í lífeyrissjóði samkvæmt lögum um lífeyrissjóði og séreignasparnað ber einnig skylda til að greiða samkvæmt kjarasamningum.

„Þeir eru bara í vanskilum með þetta hvoru tveggja,“ segir Magnús.

Hann segir allt of algengt að fyrirtæki lendi í vanskilum með launatengd gjöld.

„Því miður þá verður að segjast eins og er að ábyrgðarsjóður launa, sem er fjármagnaður með sérstöku gjaldi sem allt atvinnulífið í landinu borgar, og borgar kröfur sem verða til sem svokallaðar forgangskröfur í þrotabúum, þá er þetta allt of algengt. Þar á meðal eru kröfur um vangreidd laun launafólks og iðgjöld til lífeyrissjóða. Það eru háar fjárhæðir sem eru greiddar úr ábyrgðarsjóði launa hvert ár.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×