Hazard bjargaði stigi fyrir Chelsea Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. mars 2019 15:45 Jiménez skorar fyrir Wolves. vísir/getty Eden Hazard tryggði Chelsea stig gegn Wolves þegar hann jafnaði metin í 1-1 á 92. mínútu í leik liðanna á Stamford Bridge í dag. Wolves náði forystunni á 56. mínútu, þvert gegn gangi leiksins, þegar Raúl Jiménez skoraði eftir vel útfærða skyndisókn og sendingu frá Diogo Jota. Þetta var eina skot Úlfanna í leiknum. Chelsea sótti stíft það sem eftir lifði leiks og pressan bar loks árangur á 92. mínútu þegar Hazard skoraði sitt þrettánda deildarmark á tímabilinu. Lokatölur 1-1. Chelsea er í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 57 stig, jafn mörg og Arsenal en lakari markatölu. Wolves situr í 7. sætinu með 44 stig. Úlfarnir fengu fjögur stig af sex mögulegum í deildarleikjum tveimur gegn Chelsea á tímabilinu. Enski boltinn