Erlent

Hvíta húsið býr sig undir að þræta fyrir loftslagsvísindi

Kjartan Kjartansson skrifar
William Happer var prófessor við Princeton-háskóla og er nú einn stjórnenda þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna. Hann hefur líkt koltvísýringi við gyðinga í Þýskalandi nasismans.
William Happer var prófessor við Princeton-háskóla og er nú einn stjórnenda þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna. Hann hefur líkt koltvísýringi við gyðinga í Þýskalandi nasismans. Vísir/EPA
Sérstakri nefnd skipaðri sérvöldum vísindamönnum sem Hvíta húsið hefur í hyggju að koma á fót er ætlað að þræta fyrir þekktar staðreyndir um umfang og orsakir loftslagsbreytinga á jörðinni. Eðlisfræðingur sem orðaður er við formennsku í nefndinni hefur líkt andúð á koltvísýringi við þá sem mætti gyðingum á tímum nasista.

Alvarleiki loftslagsbreytingar af völdum manna hefur verið þekktur í áratugi og hefur verið lýst í vísindaskýrslum og þjóðaröryggisgreiningum sem bandaríska alríkisstjórnin hefur gefið út, jafnvel eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tók við völdum. Hann hefur ítrekað haft loftslagsbreytingar í flimtingum og kallað þær „gabb“ á vegum Kínverja.

Nú er Hvíta hús hans sagt leggja drög að sérstakri forsetanefnd undir hatti þjóðaröryggisráðsins sem á að véfengja vísindalegar niðurstöður sem ríkisstjórnin hefur sjálf birt og að bruni á jarðefnaeldsneyti skaði loftslag jarðar. Starfsmenn Hvíta hússins hafa þegar skrifað drög að tilskipun um stofnun nefndarinnar sem Trump gæti gefið út, að sögn New York Times.

Í nefndina yrðu skipaðir ýmsir vísindamenn sem eru þekktir fyrir að draga í efa viðurkennd loftslagsvísindi og ábyrgð manna á vandanum. Washington Post segir að ekki yrðu gerðar sömu kröfur til þessarar nefndar um opinbert gegnsæi og gert er til formlegra ráðgjafanefnda á vegum stjórnvalda. Þannig þyrfti hún til dæmis ekki að funda fyrir opnum dyrum eða beygja sig undir upplýsingalög.

Formaður nefndarinnar á að vera William Happer, einn stjórnenda þjóðaröryggisráðsins og eðlisfræðingur. Hann er hvorki menntaður í loftslagsvísindum né hefur reynslu af rannsóknum á því sviði en hann hefur engu að síður fullyrt að koltvísýringur, gróðurhúsalofttegundin sem er helsta orsök loftslagsbreytinga, sé ekki skaðlegur.

Happer þessi, sem er 79 ára gamall, fullyrti í sjónvarpsviðtali árið 2014 að koltvísýringur hefði verið „skrímslavæddur“ sem væri „nákvæmlega eins“ og skrímslavæðing gyðinga í tíð Adolfs Hitler og nasista. Washington Post segir að þrýstihópur sem Happer stofnaði hafi þegið fé frá hægriöfgasamtökum og jarðefnaeldsneytisfyrirtækjum.

Auk þess að líkja baráttu gegn losun gróðurhúsalofttegunda við helförina hefur Happer sagst vilja auka styrk koltvísýrings í andrúmsloftinu allt að fimmfalt. Styrkurinn er nú þegar líklega sé mesti í að minnsta kosti nokkur hundruð þúsund ár vegna bruna manna á kolum, olíu og gasi.

Allir fengu tækifæri til að rýna í loftslagsskýrslur stjórnvalda

Trump er sagður hafa verið reiður yfir því að ríkisstjórn hans hafi birt opinberlega vísindaskýrslu um loftslagsmál í nóvember. Lög kveða á um að ríkisstjórnin láti vinna slíka skýrslu en forsetinn var ósáttur við að hún hafi orðið pólitískum andstæðingum vopn gegn stefnu hans um að afnema loftslagsaðgerðir sem ákveðnar voru í tíð Baracks Obama, fyrrverandi forseta.

Hugmyndir um að þræta fyrir þekkt loftslagsvísindi hafa áður komið upp í ríkisstjórn Trump. Fyrrverandi forstjóri Umhverfisstofnunarinnar vildi efna til kappræðna um loftslagsbreytinga á milli vísindamanna og afneitara. Nokkrir fyrrverandi starfsmenn Hvíta hússins, þar á meðal John Kelly, fyrrverandi starfsmannastjóri þess, eru sagðir hafa drepið þá hugmynd og hvatt til þess að ríkisstjórnin „hunsaði“ frekar niðurstöður vísindamanna ríkisstjórnarinnar um loftslagsbreytingar.

Í minnisblaði sem starfsmenn Hvíta hússins hafa unnið í tengslum við mögulega skipan nefndarinnar er því haldið fram ranglega að fjöldi vísindarannsókna og skýrsla varnarmálaráðuneytisins um hættur loftslagsbreytinga hafi ekki „farið í gegnum ítarlega sjálfstæða og fjandsamlega ritrýni til að kanna vissu og óvissu loftslagsvísinda og þýðingu fyrir þjóðaröryggi“.

Katherine Hayhoe, loftslagsvísindamaður við Tækniháskólann í Texas og einn höfunda vísindaskýrslu bandarísku alríkisstjórnarinnar, bendir á í tísti að vísindaskýrslan hafi þvert á móti gengið í gegnum ströngustu ritrýni nokkurrar skýrslu um loftslagsbreytingar sem gerð hafi verið í Bandaríkjunum, bæði frá vísindamönnum og með opinberu umsagnarferli.

„Hver ætlar að fara yfir loftslagsskýrslur alríkisstjórnarinnar sem hefur ekki fengið tækifæri til þess? Svarið er enginn. Allir fengu tækifæri til að fara yfir skýrslurnar áður en þessi ríkisstjórn birti þær og ef þeir voru hluti af alríkisstofnun fengu þeir fjölda tækifæra,“ tísti Hayhoe um frétt Washington Post af nefndinni.


Tengdar fréttir

Trump dregur niðurstöður loftslagsskýrslunnar í efa

Donald Trump svaraði spurningum blaðamanna um nýútgefna loftslagsskýrslu við Hvíta húsið í dag. Trump sagðist ekki trúa því að áhrif loftslagsbreytinga yrði á þá leið sem skýrslan lýsir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×