Innlent

Lýsir Vigdísi Hauksdóttur sem sirkusstjóranum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Magnús Már Guðmundsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, og Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins, í borgarstjórn.
Magnús Már Guðmundsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, og Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins, í borgarstjórn.
Magnús Már Guðmundsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og núverandi varaborgarfulltrúi, lýsir Vigdísi Hauksdóttur, oddvita Miðflokksins í borgarstjórn, sem sirkusstjóranum þegar kemur að framkomu kjörinna fulltrúa í garð embættismanna og starfsmanna Reykjavíkurborgar.

Segir hann að allir sem það vilji vita, viti að ástandið í Ráðhúsinu sé óviðunandi, og að gagnrýni á stjórnmálamenn sé hluti af leiknum en það sama sé ekki hægt að segja um starfsfólk borgarinnar.

Magnús hefur ritað ítarlega færslu á Facebook um málið auk þess sem hann ræddi það í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun en hann er í leyfi frá störfum sínum í borgarstjórn eftir að hann tók við starfi sem framkvæmdastjóri BSRB.

Eitrað starfsumhverfi vegna fordæmalausrar hegðunar

Undanfarna daga hefur töluvert verið fjallað um færslu sem Stefán Eiríksson, borgarritari, ritaði í síðustu viku á lokaðan Facebook-hóp starfsmanna borgarinnar. Sagði Stefán þá stöðu blasa við að fáir borgarfulltrúar eitri starfsumhverfi starfsfólks Reykjavíkurborgar með fordæmalausri hegðun, atferli og framgöngu.

Á meðal þeirra sem brugðust við þessum orðum Stefáns voru þau Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins, Kolbrún Baldursdóttir, oddviti Flokks fólksins,  sem og Vigdís Hauksdóttir.

Kolbrún kvaðst ekki hafa tekið orð Stefáns til sín enda hefði hún ekki hallmælt starfsfólki sem ynni sína vinnu af samviskusemi og alúð.  Sagði Eyþór að honum fyndist sem Stefán væri að lýsa sjálfum sér með eiturummælunum og Vigdís sagði að Stefán ætti að hætta vegna spillingar.

 

Það er einmitt viðtal RÚV við Vigdísi þar sem hún lætur þau ummæli falla sem Magnús deilir með Facebook-færslu sinni.

„Það vita allir sem vilja vita að ástandið í Ráðhúsinu er óviðunandi. Óháð gagnrýni á stjórnmálafólk í meirihlutanum sem er jú hluti af leiknum þá er ekki hægt að segja það sama um starfsfólk Reykjavíkurborgar. Fyrir helgi steig Stefán Eiríksson borgarritari fram og sagði að nú væri nóg komið. Fyrir að taka upp hanskann fyrir undirmenn sína hefur Stefán fengið gusurnar yfir sig frá völdum borgarfulltrúum sem og þeim allra reiðustu í athugasemdakerfunum.

Síðasta daga hafa þessir borgarfulltrúar toppað sig í gífuryrðum og samsæriskenningum. Skiptir þá engu að tugir starfsmanna borgarinnar hafa kvartað undan ástandinu, sumir hætt og aðrir sótt um laus störf og farnir að hugsa sér til hreyfings. Það er kerfisbundið verið að lama borgarkerfið þar sem starfsmönnum hefur að auki verið drekkt í formlegum fyrirspurnum og tillögum sem hægja á öllu. Fyrir utan ítrekaða tölvupósta sem valdir borgarfulltrúar senda starfsmönnum um allt og ekkert í nafni aðhalds og gagnsæis,“ segir Magnús í færslu sinni.



Hann segir að það sem honum hafi fundist vanta í umræðuna sé hegðun þessara einstaklinga á lokuðum fundum, til dæmis í fagráðum og nefndum borgarinnar sem embættismenn og starfsmenn sitja gjarnan.

„Þar sem ítrekað er gripið frammí, hlegið, slegið í borð, myndir teknar af viðkomandi, rokið út, málrómur hækkaður, jafnvel hrópað o.s.frv. Að auk er talað um viðstadda embættismenn í þriðju persónu líkt og þeir sitji ekki fundina og síðan er dæmi um borgarfulltrúa sem hefur sagst með afgerandi hætti ekki getað setið með tilteknum starfsmönnum á fundum vegna starfa þeirra fyrir borgina.

Utanaðkomandi aðilar hafa líka fengið að finna fyrir því en þeir koma reglulega inn á fundi í fagráðunum t.d. til að fylgja eftir skýrslum sem þeir hafa unnið að beiðni Reykjavíkurborgar. Þá er reynt að gera þessa fagaðila tortryggilega með því að spyrja hvað þeir hafi gengið greitt fyrir að vinna þessa vinnu, hversu margar skýrslur þeir hafi unnið fyrir borgina og hvort þeir hafi raunverulega þekkingu á því sem þeir eru að fjalla um. Dæmin eru ólík en ótal mörg og sjálfur sat ég auðvitað bara hluta af þeim fundum sem fram hafa farið á þessu kjörtímabili,“ segir Magnús á Facebook.

Í viðtalinu við Morgunútvarpið sagði Magnús að oddvitar Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Flokks fólksins sem og Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gengu hvað harðast fram með óviðeigandi framkomu í garð embættismanna og starfsmanna borgarinnar.

Hann var svo spurður út í það í Morgunútvarpinu hvort það væri einhver einn verri en annar í þessu.

„Ég held að það sé hægt að tala um Vigdísi Hauksdóttur, að hún sé svona sirkusstjórinn í þessu og taki það býsna alvarlega,“ sagði Magnús.


Tengdar fréttir

Stefán segist aldrei hafa upplifað annað eins ástand

Stefán Eiríksson, borgarritari, sagði starfsmenn Reykjavíkurborgar ekki eiga að þurfa að sæta því að talað sé til þeirra með niðrandi hætti, gert sé lítið úr störfum þeirra og ýmislegt annað sem hafi verið gert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×