Viðskipti innlent

Ópal Sjávar­fang inn­kallar allar reyktar af­urðir sínar vegna lis­teríu­mengunar

Atli Ísleifsson skrifar
Ópal birkireyktur laxabiti.
Ópal birkireyktur laxabiti.
Ópal Sjávarfang hefur stöðvað alla framleiðslu og dreifingu á vörum fyrirtækisins vegna listeríumengunar.

Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að frekari rannsókn á örverumengun hjá fyrirtækinu gefi tilefni til að ætla að ekki hafi tekist að uppræta listeríumengun í fyrirtækinu og að fleiri afurðir kunni að vera mengaðar af bakteríunni. Hefur fyrirtækið ákveðið að innkalla allar reyktar afurðir þess úr verslunum.

„Innköllunin nær til allra lotunúmera á reyktum afurðum (birkireyktum, hangireyktum og heitreyktum) frá Ópal Sjávarfangi sem eru á markaði (síðustu notkunardagar í janúar, febrúar og mars). Átt er við allan kaldreyktan lax, heitreyktan lax, reykta fjallableikju, reyktan makríl og síld: bita, hálfflök, flök, kubba, hnakka, sneiðar, áleggslax, laxakurl. 

 

  • Dæmi um vöruheiti: Ópal reyktur / birkireyktur / hangireyktur / heitreyktur lax (laxabiti, flök, kubbar, hnakkar, sneiðar, áleggslax, laxakurl), Ópal reykt / birkireykt / hangireykt fjallableikja (bitar og sneiðar), Ópal heitreykt makrílflök, Ópal léttreykt síldarflök
  • Framleiðandi: Ópal Sjávarfang ehf, Grandatröð 4, 220 Hafnarfjörður
  • Dreifingaraðilar: Verslanir 10-11, verslanir Hagkaupa, verslanir Nettó, verslanir Kjörbúðarinnar, verslanir Krambúðarinnar, Melabúðin, verslanir Iceland og verslunin Kvosin.
Ópal sjávarfang
Neytendum sem keypt hafa vörurnar er bent á að neyta þeirra ekki og hafa samband við fyrirtækið um endurgreiðslu í síma 517 66 30 eða á netfanginu opal@opal.is. Þeir sem eiga reyktar afurðir frá því í desember eða janúar í frysti hjá sér, eru einnig beðnir um að hafa samband og skila þeim gegn endurgreiðslu.

Listeria monocytogenes getur orsakað sjúkdóm bæði hjá mönnum og dýrum og kallast þessi sjúkdómur listeriosis. Einkenni sjúkdómsins eru mild flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti og stundum ógleði og niðurgangur. Alvarlegri einkenni eru heilahimnubólga í ungbörnum, blóðeitrun og getur sjúkdómurinn einnig valdið fósturláti. Í einstaka tilfellum getur bakterían valdið dauða, þá er yfirleitt um að ræða einstaklinga sem eru með skert ónæmiskerfi.

Í flestum heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á listeríumenguðum matvælum ekki sjúkdómi. Áhættuhópar eru barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. Hópsýkingar af völdum listeríu eru mjög sjaldgæfar, oftast er um að ræða einstaklingssýkingar,“ segir í tilkynningunni frá Matvælastofnun.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×