Enski boltinn

Firmino með vírus og tæpur fyrir leikinn annað kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Roberto Firmino.
Roberto Firmino. Getty/Simon Stacpoole
Liverpool gæti verið án Roberto Firmino í fyrri leiknum á móti Bayern München í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Liverpool fær Bayern í heimsókn á Anfield annað kvöld.





Firmino glímir við veikindi en hann er með vírus og æfði ekki með Liverpool liðinu í dag.

Roberto Firmino er með 11 mörk og 5 stoðsendingar í öllum keppnum með Liverpool í vetur og er algjör lykilmaður í Liverpool-liðinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×