Viðskipti innlent

Stella Thors til KPMG

Atli Ísleifsson skrifar
Stella Thors.
Stella Thors. KPMG
Stella Thors hefur hafið störf á ráðgjafarsviði KPMG. Hún hefur starfað hjá Fjármálaeftirlitinu síðustu ár.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að Stella sé með BS próf í tölvunarfræði frá HR og búi yfir 14 ára reynslu af upplýsingatæknigeiranum og fjármálamarkaðinum.

„Stella starfaði á árunum 2007 til 2011 sem fagstjóri yfir prófunum og gæðamálum í þróun hjá Teris en Teris sameinaðist Reiknistofu bankanna í byrjun árs 2012.

Frá árinu 2011 til ársloka 2018 starfaði Stella sem sérfræðingur í áhættugreiningu í upplýsingatækni hjá Fjármálaeftirlitinu. Meðal þeirra verkefna sem hún sinnti hjá eftirlitinu var útgáfa á leiðbeinandi tilmælum um upplýsingakerfi eftirlitsskyldra aðila, úttektir, rannsóknir auk aðkoma að málefnum sem tengdust upplýsingatækniáhættu fjármálafyrirtækja.

Í starfi á ráðgjafarsviði KPMG mun Stella leggja megináherslu á ráðgjöf tengda  áhættustýringu- og stjórnarhætti upplýsingatæknimála með sérstaka áherslu á eftirlitsskyld félög,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×