Viðskipti innlent

Kúnígúnd á Laugavegi lokar

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Verslunin hefur ákveðið að kveðja Laugaveginn eftir að hafa verið þar í 37 ár.
Verslunin hefur ákveðið að kveðja Laugaveginn eftir að hafa verið þar í 37 ár. Vísir/vilhelm
Eigendur verslunarinnar Kúnígúnd hafa ákveðið að loka verslun sinni við Laugaveg á næstu vikum. Verslunin hefur ákveðið að kveðja Laugaveginn eftir að hafa verið þar í 37 ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá eigendum.

Þar segir jafnframt að Kúnígúnd muni sameina starfsemina við nýlega verslun sína í Kringlunni.

„Haustið 2017 var verslun Kúnígúnd í Kringlunni flutt í stærra rými þar sem ný og glæsileg verslun með stóraukið vöruúrval hefur verið rekin síðan með frábærum árangri.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×