Innlent

Röskva sigraði í kosningum til Stúdentaráðs Háskóla Íslands

Birgir Olgeirsson skrifar
Röskva fékk 17 menn í Stúdentaráð en Vaka 10.
Röskva fékk 17 menn í Stúdentaráð en Vaka 10. Vísir/Vilhelm
Röskva bar sigurorð af Vöku  í kosningum til Stúdentaráðs Háskóla Íslands í ár sem fram fóru í dag og í gær.

27 fulltrúar skipa Stúdentaráð en stúdentaráðsfulltrúar sitja einnig í svokölluðum sviðsráðum stúdenta við HÍ. 

Í raun er kosið í sviðsráðin á hverju sviði fyrir sig og þeir fulltrúar sem ná kjöri í sviðsráðin mynda svo Stúdentaráð. Á öllum sviðum eru 5 fulltrúar nema á félagsvísindasviði, en þar eru 7 fulltrúar.

Kjörsókn var 35,78 prósent. 

Á félagsvísindasviði fékk Röskva 4 en Vaka 3. 

Á heilbrigðissviði fékk Röskva 3 en Vaka 2.

Á hugvísindasviði fékk Röskva 4 en Vaka 1. 

Á menntavísindasviði fékk Röskva 3 en Vaka 2

Á verkfræði- og náttúruvísindasviði fékk Röskva 3 en Vaka 2.

Röskva fékk 17 fulltrúa kjörna í Stúdentaráð en Vaka 10.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×