Innlent

Bein útsending: Málstofa um líðan háskólanema - Eru ekki allir hressir?

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá Háskólanum í Reykjavík.
Frá Háskólanum í Reykjavík. Fréttablaðið/Ernir
Málstofa um líðan háskólanema á Íslandi fer fram í Háskólanum í Reykjavík í dag og hefst klukkan 12. Málstofunni er streymt beint en hún stendur í klukkustund.

Ingvar Eysteinsson MSc nemandi við HR kynnir niðurstöður rannsóknar á algengi kvíðavandamála og þunglyndis á meðal nemenda í Háskólanum í Reykjavík.

Jón Magnús Kristjánsson yfirlæknir bráðalækninga Landspítala ræðir lyfjamisnotkun háskólanema - áhrif og afleiðinga.

Grétar Björnsson félagsfræðingur og háskólanemi ræðir áskoranir og líðan í háskólaumhverfinu.

Sævar Már Gústavsson kynnir sálfræðiþjónustu HR og hvernig hún hefur nýst nemendum?

Náms- og starfsráðgjöf HR Tekur þátt í pallborðsumræðum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×