Innlent

Bílvelta á Grindavíkurvegi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ökumaðurinn slapp með skrámur.
Ökumaðurinn slapp með skrámur. Vísir/Vilhelm
Bílvelta varð á Grindavíkurvegi í gær þegar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á Selhálsi norðanverðum. Bíllinn fór út af veginum og valt í vegkantinum. Ökumaðurinn slapp með skrámur en bifreiðin var óökufær.

Þá hafa orðið þrjú umferðaróhöpp á Reykjanesbraut á síðustu dögum þar sem ökumennirnir misstu stjórn á bílum sínum með þeim afleiðingum að þeir höfnuðu á vegriði. Engin slys urðu á fólki en talsvert tjón á bifreiðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×