Fótbolti

Guðni: Eitt af markmiðunum að gera KSÍ að verðmætara vörumerki á alþjóðlegum mælikvarða

Anton Ingi Leifsson skrifar
Guðni í ræðustól.
Guðni í ræðustól. mynd/ksí
Guðni Bergsson og Geir Þorsteinsson bjóða sig fram til formanns KSÍ en 73. ársþing KSÍ fer fram fram á Hilton Hótelinu í Reykjavík eftir tæpar tvær vikur.

Guðni og Geir mætast þann níunda febrúar og undanfarna daga og vikur hafa þeir verið í hinum ýmsu viðtölum áður en stóra stundir rennur upp eftir ellefu daga.

Guðni tók við formannsstólnum af Geir fyrir tveimur árum og hefur nú setið sem formaður í tvö ár en á meðal þess sem Guðni gerði var að tryggja Íslandi pláss í tölvuleikjunum FIFA og PES út árið 2020.

Það vakti mikla athygli er KSÍ, undir stjórn Geirs, hafnaði boði EA Sports um að hafa Ísland í FIFA 17. Ísland samþykkti boð PES en hafnaði boði FIFA og það fór ekki vel í landann.

Guðni segir á Twitter-síðu sinni í gær að þetta sé eitt þátturinn í því að auka verðmæti KSÍ á alþjóðlegum mælikvarða.

„Eitt af markmiðum KSÍ er auka sýnileika sambandsins og að gera KSÍ að verðmætara vörumerki á alþjóðlegum mælikvarða. Liður í þessu markaðsstarfi var að tryggja karlalandsliðinu okkar pláss í leikjum FIFA og PES út árið 2020,“ skrifaði Guðni á Twitter í gær.

Það verður fróðlegt að fylgjast með næstu tveimur vikum fyrir formannskjörið sem fer fram 9. febrúar eins og áður segir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×