Innlent

Kaupir umdeilda eign sonarins á Þingvöllum

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Þingvallanefnd vildi kaupa 2016 og breyta í nestispall.
Þingvallanefnd vildi kaupa 2016 og breyta í nestispall. Fréttablaðið/Garðar
Þingvallanefnd ákvað í nóvember að ganga ekki inn í viðskipti með steypugrunn innan friðlandsins á bakka Þingvallavatns.

Um er að ræða grunn á lóðinni Valhallarstíg nyrðri 7 sem áður hefur verið í fréttum, síðast 2017 er Þingvallanefnd snerist hugur og ætlaði að ganga inn í kaup Gísla Haukssonar í Gamma á grunninum af hjónunum Boga Pálssyni og Sólveigu Dóru Magnúsdóttur fyrir 70 milljónir króna. Fjármálaráðuneytið sagði á endanum ekki forsendur til að kaupa eignina „miðað við það verð sem lagt hefur verið til grundvallar“. Gekk Gísli einnig úr skaftinu og grunnurinn var því áfram í eigu Boga og Sólveigar.

Þingvallanefnd barst í október í haust bréf frá Boga. Hann hafði þá fengið tilboð í húsgrunninn frá föður sínum, Páli Samúelssyni. Páll var eigandi Toyota-umboðsins á Íslandi til 2005. Þingvallanefnd ákvað sem fyrr segir að nýta ekki forkaupsréttinn.

Ekki er unnt að sjá að þessu sinni hvaða viðskiptum ríkið er að hafna því strikað er yfir kaupverðið í afriti af skjölum sem send voru Fréttablaðinu. „Nöfn og fjárhæðir hafa verið teknar út með vísan til 9. gr. upplýsingalaga,“ útskýrir þjóðgarðsvörður. „Óheimilt er að veita almenningi aðgang að gögnum um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari, nema sá samþykki sem í hlut á,“ segir í umræddri lagagrein.

Samkvæmt fasteignaskrá var gefið út afsal fyrir eigninni til Páls Samúelssonar um miðjan desember.

Sjá einnig: Hugleiða að breyta 70 milljóna grunni úr hruninu í nestispall í þjóðgarðinum

Þegar málið kom á borð Þingvallanefndar á árunum 2016 og 2017 þótti verulegur vafi leika á því að framkvæmdir Boga og Sólveigar á árunum fyrir hrun samræmdust skilmálum. Í bréfi Ólafs Arnar Haraldssonar, þáverandi þjóðgarðsvarðar, til forsætisráðuneytisins í október 2016 rakti Ólafur Örn að Bogi og Sólveig hefðu látið rífa sumarhús á lóðinni og í stað þeirra hefði verið gerður 133,7 fermetra grunnur úr steinsteypu á stöplum með kjallara. Stærð kjallarans væri ekki innifalin í tilgreindri stærð.

„Þingvallanefnd telur að þar sem sumarhúsin voru rifin og steyptur var í stað þeirra grunnur á stöplum ásamt kjallara séu hugsanlega í reynd brostnar forsendur fyrir því að endurbygging sumarhúsanna teljist til þeirra lagfæringa eða breytinga sem þegar var búið að samþykkja.“

Í svarbréfi Einars Á. E. Sæmundsen, núverandi þjóðgarðsvarðar, til Boga Pálssonar þar sem tilkynnt er um að fallið sé frá forkaupsréttinum er ekki minnst á efasemdir um að framkvæmt hafi verið í heimildarleysi á lóðinni. Hins vegar leiðbeint um hvernig halda megi byggingunni áfram. Til þess þurfi að sækja um nýtt byggingarleyfi hjá Bláskógabyggð þar sem gamla leyfið sé fallið úr gildi. Einnig þurfi samþykki Þingvallanefndar fyrir öllum framkvæmdum í þjóðgarðinum.

Grunnurinn er á lóð í eigu ríkisins. Leigusamningur var endurnýjaður árið 2011 til tíu ára.


Tengdar fréttir

Geta beðið átekta uns leigutíminn rennur út

Fjármálaráðuneytið bendir á að í stað þess að ríkið kaupi húsgrunn á leigulóð ríkisins við Þingvallavatn á 70 milljónir króna eins og Þingvallanefnd vildi sé hægt að bíða þar til leigusamningurinn rennur út eftir fjögur ár og fá þá lóðina til baka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×