Viðskipti innlent

Innkallar gular skvísur Ellu vegna sápubragðs

Atli Ísleifsson skrifar
Viðkomandi lota var framleidd í febrúar 2018.
Viðkomandi lota var framleidd í febrúar 2018. Reykjavíkurborg
Nathan & Olsen hefur innkallað gular skvísur með barnamat frá Ella‘s Kitchen, The Yellow One, eftir að ábending barst um sápubragð í einni skvísunni.

Í tilkynningu frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur segir að varan hafi síðast farið í dreifingu frá Nathan & Olsen í júní síðastliðinn og sé búið að leita allra leiða til að tryggja að varan sé hvergi í sölu í verslunum.

„Um er að ræða einstakt tilvik, en viðkomandi lota var framleidd í febrúar 2018.  Yfir 170 þús. stk. voru framleidd af lotunni sem fór í dreifingu til margra landa og hefur sambærileg ábending ekki komið fram annars staðar. Sápa er ekki notuð við framleiðslu og sápa kemst aldrei í snertingu við vöruna á neinu stigi í framleiðslunni. Verksmiðjur Ella‘s Kitchen eru gæðavottaðar og undir ströngu eftirliti yfirvalda.

Nathan & Olsen hf. vill með tilliti til varúðarsjónarmiða og með hliðsjón af neytendavernd, tryggja að varan finnist hvergi hjá neytendum og biður því þá neytendur sem kunna að hafa vöruna undir höndum að skila henni til Nathan & Olsen hf.,Klettagörðum 19, 104 Reykjavík.

Um eftirfarandi vöru er að ræða:

Ella´s Kitchen - The Yellow One, best fyrir 02/2019, lotunúmer: 1903023312, strikamerki 5060107330030

Nathan & Olsen vill taka fram að einungis er um að ræða þetta tiltekna lotunúmer og best fyrir dagsetninguna 02/2019,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×