Körfubolti

Mikilvægur sigur í toppbaráttunni hjá Martin og félögum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Martin í leik með Alba Berlín.
Martin í leik með Alba Berlín. vísir/getty
Alba Berlin vann mjög sterkan útisigur á liðinu sem situr í öðru sæti þýsku Bundesligunnar í körfubolta í dag. Martin Hermannsson var að vana á meðal stigahæstu manna í Berlínarliðinu.

EWE Oldenburg var í öðru sæti fyrir leikinn í dag með 12 sigra úr 14 leikjum. Berlínarliðið var ekki langt á eftir, í fjórða sætinu með 10 stig. Þeir gerðu hins vegar gríðarlega vel í að ná í sterkan, níu stiga útisigur.

Martin spilaði tæpar 25 mínútur í leiknum og skoraði 12 stig fyrir Berlín sem vann 93-84. Hann bætti við 3 fráköstum og 6 stoðsendingum.

Jafnt var með liðunum í upphafi en gestirnir náðu að slíta sig aðeins frá fyrir hálfleikinn og fóru inn í hann með 43-49 forystu. Þriðji leikhlutinn var áfram nokkuð jafn en í upphafi þess fjórða náðu gestirnir að byggja sér upp gott forskot og komust mest í 17 stiga forystu.

Heimamenn gerðu áhlaup undir lokin en það dugði ekki til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×