Handbolti

Man eftir fyrsta högginu þegar að hann þurfti að fara að venjast því að tapa

Tómas Þór Þórðarson í München skrifar
Dagur Sigurðsson ræðir við fjölmiðla eftir tapið gegn Makedóníu.
Dagur Sigurðsson ræðir við fjölmiðla eftir tapið gegn Makedóníu. vísir/tom
Dagur Sigurðsson er búinn að tapa báðum leikjum sínum með Japan á heimsmeistaramótinu í handbolta en þrátt fyrir að spilamennska liðsins hefur orðið betri undir hans stjórn er langt í land í baráttunni við mörg Evrópuliðin.

Dagur hefur verið fullkomlega hreinskilinn með stöðu Japan á mótinu og sömuleiðis við strákana sína sem spila miklu fleiri leiki en þeir eru vanir á hverju ári.

„Nú er ég búinn að vera með þá í tvö ár og ég er búinn að sýna þeim fram á það hvar við stöndum í staðinn fyrir að segja þeim hvar þeir eru. Áður en ég tók við liðinu spilaði Japan tíu leiki á ári og þá segir sig sjálft að þú tapar ekkert rosalega mörgum leikjum,“ segir Dagur.

Dagur hefur unnið marga tilta á ferlinum.vísir/getty

Fór strax að vinna

„Eftir að ég tók við erum við að spila hátt í 30 leiki á ári og meira við evrópsku liðin ef eitthvað er og því höfum við tapað alveg helling af leikjum. Það fer bara í reynslubankann og þá veit maður hvar maður stendur,“ segir hann.

Dagur er rosalega vanur því að vinna leiki og titla. Hann var í frábæru liði Vals í byrjun meistaraflokksára sinna og varð t.a.m. Íslandsmeistari fjögur ár í röð. Hann upplifði sigursæla tíma sem spilandi þjálfari í Austurríki með Füchse Berlín í Þýskalandi og svo varð hann Evrópumeistari með Þýskaland árið 2016.

Það er stór munur á því að þjálfa bestu leikmenn heims sem framkvæma meira og minna allt sem þú biður þá um að gera en að stýra svo Japan en þetta er eitthvað sem Dagur vissi að sjálfsögðu áður en að hann tók við.

Það er erfiðara að þjálfa Japan en Þýskaland.vísir/tom

Liðið brotnaði

„Ég man alveg hvenær fyrsta svona höggið kom. Það var þegar að ég var enn þá leikmaður. Ég var búinn að vinna mikið með Val í meistaraflokki en svo förum við Óli til Wuppertal. Við byrjuðum í annarri deild en komumst strax upp og unnum þar af leiðandi mikið af leikjum þá,“ segir Dagur.

„Fyrsta árið í efstu deild gekk vel. Við vorum mjög góðir. Árið eftir brotnaði liðið og ég man að ég var þá orðinn fyrirliðinn Wuppertal og þá tók töluvert á mig þegar að við byrjuðum að tapa. Þetta er öðruvísi.“

 

„Þetta er öðruvísi að því leytinu til að ég var algjörlega innstilltur á þetta. Ég gerði langtíma samning þannig að ég gæti unnið í því sjálfur að stilla mig inn á það, að taka þennan slag. Ég var orðinn þreyttur á hinu, kannski ekkert að vinna en þreyttur á umhverfinu og ég sé ekkert eftir þessu,“ segir Dagur Sigurðsson.

Klippa: Dagur - Man eftir fyrsta högginu

Tengdar fréttir

Refsað fyrir öll þau mistök sem gerð voru 

Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætti ofjörlum sínum þegar liðið tók á móti ríkjandi Evrópumeisturum Spánar í öðrum leik sínum á heimsmeistaramótinu í handbolta karla í München í gær. Niðurstaðan var sjö marka tap.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×