Lífið

Heimilislaus maður fær yfirhalningu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Wittek reyndi í tvíganga að fá Jeff í klippingu en í fyrra skiptið var hann einfaldlega of ölvaður.
Wittek reyndi í tvíganga að fá Jeff í klippingu en í fyrra skiptið var hann einfaldlega of ölvaður.
Leikarinn Jeff Wittek fór á dögunum út í þeirri von um að finna vin sinn sem er heimilislaus maður á götum Los Angeles. Maðurinn heitir einnig Jeff og er fyrrum hermaður í bandaríska hernum.

Þegar hann hætti í hernum fór hann að drekka áfengi daglega sem endaði með því að hann býr í dag á götunni og er að kljást við alkóhólisma.

Wittek er nokkuð lunkinn hárgreiðslumaður og bauð hann vini sínum heim í klippingu og gaf honum í leiðinni nýjan fatnað.

Breyting sem gerði mikið fyrir Jeff og líðan hans eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×