Real tók þriðja sætið

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Markaskorarar dagsins
Markaskorarar dagsins Vísir/Getty
Casemiro og Luka Modric tryggðu Real Madrid sigur á Sevilla í spænsku La Liga deildinni í fótbolta í dag.

Eftir markalausan fyrri hálfleik kom fysta mark leiksins á Santiago Bernabeu loks á 78. mínútu þegar Casemiro skoraði með glæsilegu langskoti fyrir utan teig. Tomas Vaclik var með fingur í boltanum en skotið var svo fast hann gat ekki gert betur en að verja boltann í slána og þaðan í netið.

Í uppbótartíma leiksins átti Luka Modric svo góðan sprett inn fyrir vörn Sevilla og komst einn á móti Vaclik. Besti leikmaður heims klikkar ekki úr svo góðu færi og sigur Madrid því öruggur, 2-0.

Með sigrinum er Real komið með þriggja stiga forskot á Sevilla í þriðja sæti deildarinnar. Barcelona er sjö stigum fyrir ofan Real á toppnum og á leik til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira