Innlent

Fækkaði um 1.400 hjá VLFA

Sighvatur Arnmundsson skrifar
Frá samningafundi hjá ríkissáttasemjara. Vilhjálmur er fyrir miðri mynd.
Frá samningafundi hjá ríkissáttasemjara. Vilhjálmur er fyrir miðri mynd. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
„Þetta er algjört auka­atriði og skiptir engu máli en það virðist hafa verið ógurlegur titringur hjá SA út af þessu,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness (VLFA), um fjölda félagsmanna sinna sem heyri undir kjaraviðræðurnar við SA.

Ríkissáttasemjari kallaði eftir fjölda félagsmanna sem samningarnir ná til frá stéttarfélögunum. Samkvæmt upphaflegu svari VLFA voru félagsmenn alls 2.509 en samkvæmt leiðréttu svari eru þeir 1.102.

„Ég sendi tölvupóst á SA og sagði að ef þetta væri nú það sem SA hefðu mestar áhyggjur af þá væru áhyggjurnar sem við þyrftum að hafa ekki miklar.“

Vilhjálmur segir að vegna misskilnings hafi verið tekinn saman listi þar sem einnig var að finna félagsmenn sem heyra undir sérkjarasamninga. Stærstur hluti þeirra starfar í stóriðju á Grundartanga.

„Það fór vitlaus tala til Ríkissáttasemjara en ég er búinn að leiðrétta það. Við erum aldrei að spá í þetta fyrr en við þurfum að láta kjósa um verkfall eða samning. Þetta hefur aldrei verið gert á meðan viðræður eru í gangi þannig að þetta eru ný vinnubrögð hjá sáttasemjara.“

Vilhjálmur vill á móti vita hversu mörg fyrirtæki eigi aðild að SA. „Ég ætla að senda erindi og spyrja að því hvað það séu mörg fyrirtæki sem tengjast SA á mínu félagssvæði. Við höfum ekki hugmynd um það hvort fyrirtæki sem félagsmenn okkar vinna hjá tilheyra SA eða ekki. Ég kalla eftir þessum upplýsingum og að þetta verði greint niður á félagssvæði.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×