Handbolti

Vítabaninn Björgvin vaknaður

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Fréttablaðið
Enginn markvörður hefur varið fleiri víti en Björgvin Páll Gústavsson eftir riðlakeppnina á HM í handbolta. Vafasöm vítaköst Barein virtust kveikja á Björgvini sem hefur ekki litið um öxl eftir það.

Eftir slaka frammistöðu í fyrsta leik Íslands á HM í handbolta gegn Króatíu hefur Björgvin Páll Gústavsson hrokkið í gang og átti reynslumesti leikmaður Íslands stóran þátt í því að ungt lið Íslands komst í milliriðlana sem hefjast í dag. Hinn 33 ára gamli Björgvin Páll er síðasti meðlimur silfurhópsins frá Peking sem er enn í liðinu og lang reynslumesti leikmaður liðsins með 217 landsleiki, 83 leikjum meira en næsti maður sem er Aron Pálmarsson. Björgvin hefur átt það til í gegnum tíðina að stíga upp á stórmótum í handbolta og er það vonandi fyrir íslenska liðið að Björgvin haldi áfram á sömu braut í næstu leikjum.

Þegar rýnt er í tölfræðina kemur í ljós að hann er sá markvörður sem varði flest vítaköst í riðlakeppninni sem lauk á fimmtudaginn. Alls varði hann sjö af þeim sautján vítaköstum sem mótherjar Íslands hafa fengið í keppninni. Í fyrstu tveimur leikjum Íslands í keppninni gegn Króötum og Spánverjum varði Björgvin Páll aðeins eitt víti af fimm og náði sér ekki á strik í leikjunum  en lærisveinum Arons Kristjánssonar tókst að skjóta Björgvin Pál í stuð. Mohamed Habib var réttilega vísað upp í stúku á fyrstu mínútum leiksins þegar hann skaut beint í höfuðið á Björgvini og áttu Bareinar eftir að skjóta tvisvar til viðbótar í höfuðhæð hjá Björgvini án þess að þeim væri refsað.

Það efldi Björgvin sem átti besta leik sinn til þessa á mótinu gegn Barein og fylgdi því eftir með góðum leikjum gegn Japan og Makedóníu þar sem hann hefur haldið áfram 50% markvörslu úr vítaköstum andstæðinganna. Hann er því samtals með sjö varin víti af sautján eða 41% markvörslu eftir riðlakeppnina. Enginn markvörður á HM hefur varið fleiri víti til þessa og aðeins þrír markverðir, Nikola Marinovic frá Austurríki, Niklas Landin frá Danmörku og Leonel Carlos Maciel frá Argentínu eru með betra hlutfall þegar kemur að því að verja vítaköst eftir riðlakeppnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×