Íslenski boltinn

Grindavík fær reynslumikinn serbneskan markvörð

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Grindvíkingar fagna marki
Grindvíkingar fagna marki Vísir/Hanna
Grindvíkingar hafa samið við serbneskan markvörð sem mun spila með þeim í Pepsideild karla í sumar.

Vladan Djogatovic samdi við Grindavík til tveggja ára en hann kemur til Grindavíkur frá FK Javor í heimalandinu Serbíu.

Hann spilaði 23 leiki með Javor í haust en liðið er í efsta sæti serbnesku deildarinnar. Hann hefur spilað yfir tvö hundruð leiki í efstu deildum Serbíu.

Hjá Grindavík er fyrir pólski markvörðuinn Maciej Majewski en Kristijan Jajalo, sem var aðalmarkvörður Grindavíkur síðasta sumar, er á förum.

Serbíumaðurinn Srdjan Tufegdzic tók við liði Grindavíkur í haust af Óla Stefáni Flóventssyni og hefur nú náð í landa sinn í mark Grindavíkurliðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×