Upp á hár á nýju ári Brynhildur Björnsdóttir skrifar 8. janúar 2019 22:00 Pastellitir með dekkri strípum í sama tóni munu verða vinsælir hjá þeim sem vilja sýna dirfsku og hárhug 2019.
Veistu upp á hár hvernig þú ætlar að hafa hárið á nýju ári? Línurnar hafa verið lagðar og það er klippt og skorið hvernig hárið verður 2019. Hin sívinsæla "bob“ klipping hefur verið mikið í tísku undanfarin ár og verður áfram heit í vetur. Bob-klippingin tekur nafn sitt frá öðrum og þriðja áratugnum þegar konur hófu að klippa hár sitt í stað þess að hafa það eins sítt og mögulegt var. Bobinn er yfirleitt þverklipping allan hringinn, þar sem hárið nemur ekki neðar en við axlir en sú útgáfa hefur verið vinsæl undanfarin ár. Hárið styttist í bobnum ef eitthvað er í ár og nemur nú einhvers staðar á milli eyrnasnepla og höku. Þá er í tísku að hafa bob-inn styttri að aftan og aðeins síðari við andlitið sem býr til fallegan ramma sem er samt hægt að vinna aðeins með, til dæmis með því að krulla nokkra lokka og ná þannig styttuyfirbragði án þess að vera með styttur. Þá er einnig töff að hafa hárið aðeins síðara og knallstuttan eða síðari topp með styttum sem dregur fram augnsvipinn.Styttri bob með óreglulegum toppi er einnig vinsæl klipping.Þær sem kjósa að vera með síðara hár ættu líka að hugleiða toppa en ekki stutta þvertoppa heldur síðari og óreglulegri línur, og jafnvel má segja að erfitt sé að sjá hvar toppur verður að styttum í fremsta hluta hársins. Þessi klipping er einkar hagkvæm þar sem hún léttir á síðu hári, einkum ef það er mjög þykkt og svo er ekkert mál að skella öllu hárinu í tagl ef svo ber undir. Styttur og stórir liðir verða einnig áberandi 2019 og sléttujárnin fá alveg að hvíla sig á síða hárinu þó þeirra verði enn þörf til að geirnegla kantaðar styttri klippingar.Úr sér vaxin álfaklipping eða „pixie“ verður áberandi 2019.Álfastelpuklippingin sem stundum er einnig kölluð „pixie“ heldur stöðu sinni fyrir þær sem vilja hafa það þægilegt og einfalt. Þessi klipping á sér einnig rætur í tuttugustu öldinni, nánar tiltekið er þetta klipping sem Audrey Hepburn var með í kvikmyndinni A Roman Holiday á sjötta áratugnum. Þykkir þvertoppar verða í tísku með aðeins síðari bob-klippingu. Dökkbrúnn litur sem daðrar við kastaníubrúnan með hjálp strípa verður einnig vinsæll,Mia Farrow og Twiggie urðu svo fyrirmyndir þeirra sem kjósa þennan stutta hálfgerða drengjakoll sem er einstaklega þægilegt að eiga við og getur bæði verið frjálslegur og spari. Úr sér vaxið „pixie“ er líka vinsælt, en þá er styttunum leyft að verða aðeins lengri og tjásulegri. En varist að halda að sú greiðsla sé alveg áreynslulaus því eins og með allt í tískunni þá skiptir máli hvernig óreiðan er sett fram.Stórir liðir sem ramma andlitið inn verða aðalmálið í síðu hári í sumar og hlýir, hunangsljósir tónar taka við af kaldari hvít- eða platínuljósum litbrigðum.Vinsælustu litirnir verða hunangsskol sem er aðeins dekkri útgáfa af hunangsljósum, mjúkur kastaníubrúnn með rauðgylltum strípum, koparkossar í endana á dökku hári, pastellitir og jafnvel skyggingar þar sem fleiri en einn tónn leika saman, karamellustrípur í alla brúna liti með ljósari áherslu næst andlitinu. Já, eins og venjulega er úr nægu að velja í hártískunni og ætti að vera auðvelt að finna réttu greiðsluna árið 2019.Rauðir eða koparlitir tónar í síðu, dökku hári verða áberandi á því frúarári 2019 og því meira eftir því sem neðar dregur í lokkunum.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Bíó og sjónvarp Potter-stjarna harmar hvernig fór með Rowling Bíó og sjónvarp „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Lífið Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Lífið Minningar um líf sem er að hverfa Lífið Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Lífið Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Lífið Hyggjast renna fimmtíu íslenskum lögum inn í karaokívélarnar Lífið Fleiri fréttir Alltaf með naglaþjöl en gleymir stundum lyklunum Innsýn í fatahönnun framtíðarinnar Lófaklapp og litagleði á tískusýningu útskriftarnema Strangheiðarleg dreifbýlistútta og lopapeysan í uppáhaldi „Elska að hafa skipulagt kaos“ „Spyr mig oft hvort öll þessi vinna sé þess virði“ Listræn súkkulaðiupplifun og girnilegt smakk Menningarlífið iðar og HönnunarMars hefst á morgun Hefur hannað fyrir Miley Cyrus og Erykah Badu Íslensk skartgripahönnun á besta stað í New York Starfaði fyrir pólska herinn og sýnir nú skartgripi á Garðatorgi Kemur beint frá París með vistvæna tískustrauma „Frá naglalakki hjá ömmu í iðnaðarmann í skítugum fötum“ Myndavél frá afa algjör fjársjóður „Það mikilvægasta er að vera trúr sjálfum sér“ Munnskolið mikilvægt í förðunarstarfinu „Sjálfstraustið er besti fylgihluturinn“ Sjá meira