Fótbolti

Bale frá vegna meiðsla næsta mánuðinn

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Meiðslapési
Meiðslapési vísir/getty
Gareth Bale mun líklega ekki leika fleiri leiki með Real Madrid í þessum mánuði vegna kálfameiðsla sem hann varð fyrir í jafntefli gegn Villarreal í miðri viku.

Bale var skipt af velli í hálfleik og hefur Real Madrid nú staðfest að Bale sé að glíma við vöðvameiðsli í vinstri kálfa; alls ekki í fyrsta skipti á ferlinum hjá kappanum.

Ætla má að það muni taka Bale 3-4 vikur að jafna sig af meiðslunum sem þýðir að hann missir af deildarleikjum gegn Real Sociedad, Real Betis og Sevilla auk tveggja bikarleikja gegn Leganes.

Bale ætti að vera klár fyrir grannaslaginn gegn Atletico Madrid þann 9.febrúar næstkomandi en fjórum dögum síðar heimsækja Evrópumeistararnir Ajax í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×