Handbolti

Þrír sem voru ekki í 20 manna hópnum fara allir á HM eftir allt saman

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Teitur Örn Einarsson kemur óvænt inn í HM-hópinn.
Teitur Örn Einarsson kemur óvænt inn í HM-hópinn. MyndFacebook-síða HSÍ
Þegar þeir héldu upp á jólin fyrir aðeins rúmum tveimur vikum þá voru Ágúst Elí Björgvinsson, Bjarki Már Elísson og Teitur Örn Einarsson ekkert á leiðinni á HM í Þýskalandi. Það hefur aftur á móti margt breyst á mjög stuttum tíma.

Landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson segist aldrei hafa lent í öðru eins og í lokaundirbúningi íslenska karlalandsliðsins fyrir HM í handbolta í Þýskalandi og Danmörku. Hann varð að gera margar breytingar á lokasprettinum þar á meðal tvær á sama degi og hann tilkynnti liðið.

Guðmundur valdi tuttugu manna hóp á milli jóla og nýárs eftir að hafa þurft að skila inn 28 manna lista fyrr í desember. Það bjuggust flestir við því að þeir sem voru ekki á þessum lista væri ekki á leiðinni á HM í janúar.

Meðal þeirra voru markvörðurinn Ágúst Elí Björgvinsson, vinstri hornamaðurinn Bjarki Már Elísson og hægri skyttan Teitur Örn Einarsson.

Meiðsli þriggja manna urðu þessa valdandi að þeir Ágúst, Bjarki og Teitur fara allir með. Markvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson og vinstri hornamaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson eru báðir meiddir og leikfærir og þá hefur Rúnar Kárason ekki náð sér á strik eftir kálfameiðsli.

„Adragandinn hefur verið mjög sérstakur og ég hef þurft að gera breytingar með mjög skömmum fyrirvara. En það þýðir ekkert að velta því fyrir sér. það er mikil blóðtaka að missa Guðjón Val, en þetta er staðan því miður. Eigum tvo leikmenn í þeirri stöðu til að leysa hann af. Þetta er bara staðan,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfariþ.

„Ég er spenntur að fara með þetta unga lið á HM. Sagði þegar ég tók við, að við værum að fara af stað í vegferð, að byggja upp nýtt lið. Það þýðir að það verða miklar breytingar á liðinu, það er að eiga sér stað núna, eins og sjá má á nöfnum og aldri leikmanna,“ sagði Guðmundur.

„Aron Rafn hefur verið að glíma við meiðsli í nára og kviðslitsvandamál. Niðurstaðan var sú að það væri of áhættusamt að láta hann taka þátt í mótinu, getur meiðst í fyrsta leik og þá þarf hann að fara í stóra aðgerð. Þess vegna kemur Ágúst Elí inn í hópinn,“ sagði Guðmundur á blaðamannafundinum.

Aron Pálmarsson tekur við fyrirliðabandinu af Guðjóni Val. „Ég er spenntur fyrir því. Ég er aðeins búinn að melta þetta í stuttan tíma því Gaui meiddist fyrir 90 mínútum. Ég hef verið fyrirliði áður, er spenntur og stoltur. Hlakka til að takast á við það,“ sagði Aron.

Ágúst Elí Björgvinsson og Bjarki Már Elísson voru kallaðir inn í hópinn fyrir æfingamótið í Noregi en Teitur Örn Einarsson mætti á sína fyrstu æfingu í þessari viku.

Nú eru þeir þrír allir á leiðinni á HM.

Tuttugu manna æfingahópur Guðmundar Guðmundssonar:

Markmenn:

Aron Rafn Eðvarðsson (Ekki valinn - meiddur)

Björgvin Páll Gústavsson

Vinstra horn:

Guðjón Valur Sigurðsson (Ekki valinn - meiddur)

Stefán Rafn Sigurmannsson

Vinstri skytta:

Aron Pálmarsson

Ólafur Guðmundsson

Miðja:

Elvar Örn Jónsson

Gísli Þorgeir Kristjánsson

Haukur Þrastarson

Janus Daði Smárason (Ekki valinn)

Hægri skytta:    

Arnar Birkir Hálfdánason (Ekki valinn)

Ómar Ingi Magnússon

Rúnar Kárason (Ekki valinn)

Hægra horn:

Arnór Þór Gunnarsson

Sigvaldi Guðjónsson

Lína:

Arnar Freyr Arnarsson

Ágúst Birgisson (Ekki valinn)

Ýmis Örn Gíslason

Varnarmenn:    

Daníel Þór Ingason

Ólafur Gústafsson

Leikmenn sem voru ekki í tuttugu manna hópnum:

Ágúst Elí Björgvinsson

Bjarki Már Elísson

Teitur Örn Einarsson




Tengdar fréttir

Hverjir hljóta náð fyrir augum Guðmundar?

Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari tilkynnir á eftir hvaða leikmenn fara á HM í Þýskalandi á morgun. Vísir rýnir í möguleika leikmanna á sæti í hópnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×