Innlent

Ætluðu á litlum fólksbíl yfir ísilagðan Kjöl

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hingað og ekki lengra komst bíllinn.
Hingað og ekki lengra komst bíllinn. Félagar Björgunarfélagsins Blöndu
Björgunarfélagið Blanda á Blönduósi var kallað út fyrr í dag vegna ferðalanga sem voru búnir að festa bíl sinn rétt sunnan við Hveravelli við Kjalveg.

Höfðu þau ætlað að skoða Gullfoss og Geysi og ákváðu að aka eftir Kjalvegi og áttuðu sig ekki á því um hvernig veg var að ræða að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörg.

Vel gekk að komast að ferðalöngunum og draga úr festunni enda eindæma blíða á hálendinu og aðstæður góðar. Var þeim svo fylgt áleiðis til byggða.

Frá Kjalvegi.Félagar Björgunarfélagsins Blöndu
Bíll björgunarsveitarinnar var öllu betur búinn.Félagar Björgunarfélagsins Blöndu

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×