Innlent

Velt upp hvort auðlindatekjur borgi lífeyri ríkisstarfsmanna

Kristján Már Unnarsson skrifar
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mælti fyrir stjórnarfrumvarpi um þjóðarsjóð á Alþingi í síðustu viku.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mælti fyrir stjórnarfrumvarpi um þjóðarsjóð á Alþingi í síðustu viku. vísir/vilhelm
Í stjórnarfrumvarpi um Þjóðarsjóð, sem nú liggur fyrir Alþingi, er reifaður sá möguleiki að arður af orkuauðlindum verði nýttur til að mæta ófjármögnuðum lífeyrisskuldbindingum vegna eftirlaunaréttinda ríkisstarfsmanna, en þær nema yfir sexhundruð milljörðum króna. Svo risastór er þessi fjárhæð að áætlaður auðlindaarður dugar ekki fyrir vöxtunum. Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mælti fyrir stjórnarfrumvarpi um stofnun þjóðarsjóðs á Alþingi í síðustu viku. Í framsöguræðu sinni sagði hann að sjóðnum væri ætlað að verða bakstuðningur ríkissjóðs. Markmiðið er að treysta fjárhagslegan styrk ríkissjóðs til að mæta afleiðingum af meiri háttar ófyrirséðum áföllum sem þjóðarbúið verður fyrir, eins og það er orðað í fyrstu málsgrein. 

Megintekjustofninn verða tekjur af orkuauðlindum þjóðarinnar, einkum frá Landsvirkjun, hugsanlega um tíu milljarðar króna á ári í byrjun, og þannig verði hægt að byggja upp 250 til 300 milljarða króna sjóð á um tuttugu árum. 

Úr stöðvarhússhvelfingu Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal. Hún er langstærsta vatnsaflsvirkjun landsins.vísir/gva
Í greinargerð frumvarpsins segir að til álita gæti komið að nýta viðbótartekjur frá orkufyrirtækjum til að mæta skuldbindingum vegna eftirlaunaréttinda ríkisstarfsmanna. Fram kemur að í árslok 2017 hafi ófjármagnaðar lífeyrisskuldbindingar í B-deild ríkisstarfsmanna numið um 620 milljörðum króna eða 24% af landsframleiðslu. 

Í umsögn vekja Samtök atvinnulífsins athygli á því að fjármálaáætlun ríkissjóðs miði við að reiknaðir vextir vegna þessara skuldbindinga hækki úr 15,2 milljörðum króna árið 2019 upp í 21,9 milljarða króna árið 2023. Það er ríflega tvölfalt hærri fjárhæð en gert sé ráð fyrir að Landsvirkjun greiði árlega inn í þjóðarsjóðinn. 

Fjármálaráðherra metur það hins vegar svo í greinargerð frumvarpsins að ekki þurfi að seilast í auðlindarentuna til að mæta eftirlaunaréttindum ríkisstarfsmanna. Áformað sé að hækka forinngreiðslur úr ríkissjóði inn í B-deild lífeyrissjóðsins upp í sjö milljarða króna á næsta ári. Hún geti þá staðið skil á lífeyrisskuldbindingum sínum þar til þær verða uppgreiddar í kringum árið 2060. Með þeim ráðstöfunum séu horfur á að Ísland verði, eitt örfárra ríkja í heiminum, með traustar áætlanir um nánast fullfjármagnað lífeyriskerfi. 

Fjármálaráðuneytið er í Arnarhvoli.Vísir/Vilhelm.
Sérfræðingar fjármálaráðuneytis vonast til að þessar sjö milljarða króna árlegu inngreiðslur næstu þrjátíu ár dugi til að kerfið verði ekki gjaldþrota. Um leið er þó viðurkennt að um þetta ríki óvissa. 

Hér má sjá frétt Stöðvar 2.


Tengdar fréttir

Þjóðarsjóður í undirbúningi í fullri sátt

Vinna að stofnun þjóðarsjóðs hefur staðið yfir undanfarna mánuði. Tæki við arðgreiðslum frá orkufyrirtækjum og önnur fjármögnun kemur vel til greina. Þverpólitískur vilji til staðar. Landsvirkjun í færum á tí- eða tuttuguföldu

Tekjur Landsvirkjunar þær mestu í sögunni

Hagnaður Landsvirkjunar fyrir fjármagnsliði varð meiri en nokkru sinni fyrr á nýliðnu ári, eða sextán milljarðar króna, og raforkuframleiðsla sló öll met.

Velta fyrir sér ráðstöfun óstofnaðs íslensks þjóðarsjóðs

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hugmyndin um íslenskan þjóðarsjóð er viðruð. Umræðan hefur staðið í um það bil tvo áratugi og skipaði Alþingi til að mynda auðlindanefnd árið 1998 sem lagði til stofnun íslensks þjóðarsjóðs þar sem arður og gjöld af auðlindum þjóðarinnar yrðu ávaxtaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×