Tíska og hönnun

Þetta stóð upp úr í tískuheiminum 2018

Glamour skrifar
Fyrirsætur á tískupalli Victoria's Secret.
Fyrirsætur á tískupalli Victoria's Secret.
Það var margt sem gerðist í tískuheiminum á árinu. Miklar breytingar hafa átt sér stað og háværustu raddirnar að þessu sinni töluðu um kynferðisofbeldi, alvöru loðfeld, hertogaynjuna Meghan og mikilvægi þess að tískuhús sýni fjölbreytni þegar kemur að líkamsímynd. Glamour hefur tekið saman nokkra atburði, eða atvik sem stóðu upp úr á árinu 2018.

Tískusýning Victoria’s Secret

Fjölbreytni í tískuheiminum hefur verið áberandi umræðuefni síðustu ár, og var enn meiri á árinu sem er að líða. Mörg undirfatamerki hafa lagt sig fram við það að sýna fjölbreytni og mismunandi líkama þegar kemur að fyrirsætuvali í auglýsingaherferðum. Því þótti taktlaust þegar eitt stærsta undirfatamerki heims tóku ekki þátt, og þótti mörgum vanta fyrirsætur í yfirstærð á tískupall þeirra fyrr á árinu.

Tískusýning Victoria’s Secret er einn stærsti viðburður ársins, þar sem helstu stjörnur og vinsælustu fyrirsætur heims ganga tískupallinn fyrir fyrirtækið. Eftir sýninguna fóru gagnrýnar raddir af stað, sem varð til þess að markaðstjóri fyrirtækisins, Ed Razek, tjáði sig um málið.

„Ef þú ert að spyrja hvort við höfum íhugað að setja trans fyrirsætur (e. transgender) eða fyrirsætur í yfirstærð í sýninguna, þá er svarið já. Við spyrjum okkur oft að því hvort við ættum að fara þá leið. Nei, ég held ekki. Afhverju ekki? Því sýningin snýst um ímyndun og draumóra,“ sagði Ed í samtali við Vogue.

Þessi orð voru svo harðlega gagnrýnd, sem varð til þess að undirfatamerkið baðst afsökunar í kjölfarið.

Kjóllinn frá Clare Waight Keller.

Konunglega brúðkaupið

Eftir trúlofun þeirra Meghan Markle og Harry Bretaprins fylgdist heimurinn vel með og ýmsar hugleiðingar um hver myndi hanna kjólinn. Heimurinn beið spenntur eftir einum stærsta tískuviðburði ársins, en talið er að um það bil tveir milljarðar hafi horft á brúðkaupið.

Breski fatahönnuðurinn Clare Waight Keller, listrænn stjórnandi Givenchy, varð fyrir valinu. Kjóllinn var stílhreinn og látlaus og þótti klæða Meghan einstaklega vel.

Kjóllinn frá Stellu McCartney.

Í kjól frá Stellu í veislunni

Fyrir veisluna skipti Meghan um kjól sem var frá breska hönnuðinum Stellu McCartney. Stella lét endurgera kjólinn í vetur og seldi í verslun sinni í London, en hann seldist af sjálfsögðu hratt upp eins og flest annað sem Meghan klæðist.

Leikkonur þáttaraðarinnar Big Little Lies fóru glaðar heim, klæddar svörtu.

Svartur dregill á Golden Globes

Spennan var mikil fyrir Golden Globes verðlaunaafhendingunni fyrr á árinu. Mikið hafði gengið á í Hollywood á mánuðunum þar á undan, og var verðlaunaafhendingin fyrsti viðburðurinn síðan flett var ofan af Weinstein skandalanum, #metoo byltingunni og svo Time’s Up. Nánast allir sem mættu á rauða dregilinn klæddust svörtu þetta kvöld.

Jakki Melaniu þótti mjög óheppilegur.

Óheppilegur klæðnaður Melaniu Trump

Þó að forsetafrúin hafi verið mun minna í sviðsljósinu en eiginmaður hennar, komu upp einstaka atvik á árinu sem að þóttu mjög óheppileg þegar kom að fatavali Melaniu.

Eitt sérstakt atvik stendur upp úr, og það var þegar hún heimsótti börn sem höfðu verið skilin frá foreldrum sínum við landamæri Bandaríkjanna. Áður en hún steig upp í einkaþotu sína á leið á viðburðinn, klæddist hún grænum jakka frá Zöru, með orðunum „Mér er alveg sama, en þér?“ á bakinu, eða „I really don’t care, do you?“ Margir voru brjálaðir í kjölfarið, og sást þá vel hversu mikil áhrif tíska og fataskápur forsetafrúarinnar hefur.

Frá vetrarlínu Philosophy di Lorenzo Serafini, en sá hönnuður sýndi gerviloðskápur sem eru nokkuð líkar þeim alvöru.

Tískuheimurinn færir sig frá alvöru loði

Undanfarin ár hefur umræða um alvöru loðfeldi verið mjög áberandi í tískuheiminum. Á árinu voru fleiri og fleiri fatamerki sem tilkynntu það að þau ætluðu að skipta yfir í gerviloð og á næsta ári má búast við fleirum í þann hóp.

Stór tískuhús á borð við Gucci, Michael Kors, Versace, Margiela, Tom Ford og Coach hafa öll tekið upp gerviefnin að ósk neytenda, því sífellt fleiri eru meðvitaðir um dýravernd, umhverfið og sjálfbærni í tískuheiminum.

Tennisbúningur Serenu Williams, sem varð síðan bannaður stuttu eftir

Serena Williams og tennisgallinn

Tennisdrottningin Serena Williams tók sér leyfi frá íþróttinni árið 2017 þar sem hún gekk með sitt fyrsta barn, dóttur sem fæddist í byrjun september sama ár. Margir biðu spenntir eftir endurkomu Serenu á tennisvöllinn, en hún tók þátt á franska opna meistaramótinu í maí síðastliðnum.

Keppnisbúningur Serenu vakti mikla athygli og lukku, en hún klæddist svörtum heilgalla frá Nike, sem var hannaður af Virgil Abloh. Aðdáendur hennar líktu búningnum strax við ofurhetjubúning, en búningurinn var hannaður með það í huga að koma í veg fyrir blóðtappa, sem Serena hafði barist við á meðgöngu sinni.

En reglur um fatnað eru strangar í tennisheiminum, og Bernard Giudicelli, forseti franska tennissambandssins var ekki hrifinn. Bernard sagðist myndi banna slíka búninga frá árinu 2019. Eftir nokkra umfjöllun um málið sagðist tennisstjarnan hafa náð samkomulagi við Bernard, og voru reglurnar endurskoðaðar. Frá árinu 2019 mega konur sem keppa í tennis klæðast leggings, eða stuttbuxum á vellinum án þess að vera í pilsi eða kjól yfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×