Erlent

Nunnur stálu hálfri milljón dala og eyddu þýfinu í Las Vegas

Samúel Karl Ólason skrifar
St, James skólinn í Torrance, Kaliforníu.
St, James skólinn í Torrance, Kaliforníu. Vísir
Nunnurnar Margaret Kreyper og Lana Chang eru sakaðar um að hafa stolið um hálfri milljón dala frá skólanum St. James í Kaliforníu yfir áratugaskeið. Þýfið munu nunnurnar hafa farið með til Las Vegas og gert sér glaða daga í spilavítum. Þrátt fyrir að nunnurnar hafi notað fjársvelta sjóði skólans eins og eigin sparibauka vilja yfirvöld kaþólsku kirkjunnar, sem reka skólann, ekki kæra þær.

Kreuper var skólastjóri um langt skeið og starfaði hjá skólanum í tæp 28 ár. Chang var kennari og samkvæmt Washington Post eru þær góðar vinkonur. Þær eru báðar sestar í helgan stein.

Fyrr á þessu ári bað fjölskylda eins nemanda ­um að skólinn gæfi þeim afrit af ávísun sem þau gáfu skólanum fyrir nokkrum árum. Við eftirgrennslan kom í ljós að ávísunin hefði ekki verið lögð inn á reikning skólans.

Umfangsmikil rannsókn var sett í gang og forsvarsmenn skólans sögðu foreldrum nemenda að þær hefðu stolið um hálfri milljón og notað peningana til ferðalaga og eytt þeim í spilavítum. Í stað þess að setja peningana inn á rekstrarreikning skólans og notuðust þess í stað við gamlan reikning í eigu bankans sem var ekki lengur í notkun.

Þær hafa viðurkennt sök.

Þrátt fyrir það eru foreldrar ekki sáttir. Þau hafa um árabil gefið peninga til skólans og stórum hluta þeirra hefur verið stolið. Eins og áður segir þá vilja yfirvöld kirkjunnar ekki kæra nunnurnar fyrir þjófnaðinn því að regla þeirra ætlar að endurgreiða skólanum, samkvæmt yfirlýsingu.



„Við vorum hraðbanki þeirra. Fólk veit það og þeir vilja ekki leita réttlætis,“ sagði eitt foreldri við Southern California News Group. Einhverjir foreldrar munu vera að leita eigin leiða til að kæra konurnar, án aðkomu kirkjunnar.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×