Handbolti

Rússland í undanúrslit eftir stórsigur á Dönum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rússarnir fagna.
Rússarnir fagna. mynd/ehf
Rússland er komið í undanúrslit á EM í handbolta kvenna en leikið er í Frakklandi. Rússarnir unnu ellefa marka stórsigur á Dönum í dag, 32-21.

Rússarnir voru mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Danir þurftu að hafa mikið fyrir sínum mörkum og var staðan 14-9, Rússlandi í vil í hálfleik.

Vandræði Dana héldu áfram í síðari hálfleik en þær fundu fáar lausnir á varnarleik Rússlands. Munurinn jókst með hverri mínútunni og varð að endingu ellefu mörk, 32-21.

Markahæst í danska liðinu var Kathrine Heindahl með fimm mörk úr sex skotum en Danir eru úr leik á EM. Þær spila síðasta leikinn gegn Svartfjallalandi á miðvikudag.

Rússland er komið í undanúrslitin en Anna Vyakhireva fór á kostum í liði Rússa og skoraði níu mörk úr níu skotum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×