Enski boltinn

Sjáðu vítaspyrnu Gylfa og glæsilegt jöfnunarmark Everton

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Gylfi Þór spilaði allan leikinn fyrir Everton
Gylfi Þór spilaði allan leikinn fyrir Everton vísir/getty
Gylfa Þór Sigurðssyni brást bogalistin á vítapunktinum í gærkvöld þegar Everton tók á móti Watford á Goodison Park.

Everton fékk vítaspyrnu í stöðunni 1-2 og fór Gylfi á punktinn og freistaði þess að jafna metin en Ben Foster varði spyrnuna. Þetta var önnur spyrnan af síðustu þremur sem Gylfi nær ekki að skora úr í búningi Everton.

Lucas Digne bjargaði Gylfa fyrir horn með því að skora jöfnunarmarkið beint úr aukaspyrnu seint í uppbótartíma leiksins.

Richarlison skoraði fyrra mark Everton og mörk Watford komu frá Abdoulaye Doucoure og sjálfsmarki Seamus Coleman.

Mörkin og öll helstu atvikin má sjá hér að neðan.



Klippa: FT Everton 2 - 2 Watford



Fleiri fréttir

Sjá meira


×