Innlent

Jólasveinar í skegg- og hársnyrtingu

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Jólasveinar mættu í skegg- og hársnyrtingu og veittu Hjálparstarfi kirkjunnar eina milljón króna í styrk.
Jólasveinar mættu í skegg- og hársnyrtingu og veittu Hjálparstarfi kirkjunnar eina milljón króna í styrk. Vísir/JóhannK
Fyrsti jólasveininn, Stekkjastaur, kemur til byggða í nótt. Að því tilefni fór Grýla með nokkra af sonum sínum til rakarans í dag í hár og skeggsnyrtingu.

Það var mikill atgangur á Rakarastofunni Dalbraut 1 í morgun þegar fréttastofu bar að garði en sjö af jólasveinunum þrettán voru þangað komnir ásamt móður sinni, Grýlu, í tvennum tilgangi. Annars vegar var um að ræða skegg- og hársnyrtingu en að auki hafði Grýla og jólasveinarnir boðað til blaðamannafundar.

Grýla afhentir Bjarna Gíslasyni, framkvæmdastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar, styrk upp á rúma eina milljón frá Jólasveinaþjónustu SkyrgámsVísir/JóhannK

Ein milljón og þrettán þúsund til Hjálparstarfs kirkjunnar

„Ég vill senda mína drengi almennilega til byggða, Stekkjastaur og félaga. En svo er ekki síður það að við höfum tekið jólaboðskapinn í hjartað og við erum hingað komin til þess að afhenta Hjálparstarfi kirkjunnar eina milljón króna,“ sagði Grýla í morgun.

Á síðastliðnum árum hefur Jólasveinaþjónusta Skyrgáms gefið Hjálparastarfi kirkjunnar meira en tíu milljónir í styrk.

Er þetta fjörugasti blaðamannafundur sem þið hafið boðað til?

„Já, þetta er með þeim betri verð ég að segja. Mjög skemmtilegt og þeir hafa safnað þrettán milljónum á nokkrum árum þessir jólasveinar,“ sagði Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar.

Hvernig gengur að afla fjár?

„Það gengur mjög vel, sérstaklega núna fyrir jólin að þá eru margir sem að styðja okkur og erum bara mjög þakklát fyrir það,“ sagði Bjarni.

Bjarni segir að þörfin fyrir aðstoð um jólin sé mikil en í fyrra fengu tæplega fjögur þúsund einstaklingar aðstoð fyrir jólin. Bjarni segir að þörfin gæti orðið svipuð í ár. Bjúgnakrækir segir jólasveinanna spennta fyrir komandi vertíð.

 

Frá blaðamannafundi Grýlu og jólasveinanna á Rakarastofunni Dalbraut 1, í dag.Vísir/JóhannK

Jólasveinarnir spenntir fyrir komandi vertíð

„Stekkjastaur kemur á eftir og nú vonum við að börnin séu góð og þæg og hlýði mömmu og pabba og verði dugleg að bursta tennur og góð vil alla í kringum sig fyrst og fremst,“ sagði Bjúgnakrækir.

Ræðu Grýlu og jólasveinanna má sjá í heild sinni hér að neðan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×