Handbolti

Sextán marka sigur í fimmtánda sigri Barcelona

Anton Ingi Leifsson skrifar
FH-ingurinn í leik með Börsungum.
FH-ingurinn í leik með Börsungum. vísir/getty
Börsungar unnu sinn fimmtánda leik í röð í spænsku urvalsdeildinni í handbolta í kvöld er liðið vann sextán marka sigur á Bada Huesca, 39-23.

Leiknum var í raun lokið eftir fyrri hálfleik því eftir hann leiddu heimamenn í Barcelona með tíu mörkum, 19-9. Munurinn endaði svo í sextán mörkum.

Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk úr fimm skotum fyrir Barcelona en hann hefur stýrt leik liðsins afar vel það sem af er tímabili; bæði í deildinni og Meistaradeildinni.

Börsungar eru á toppi deildarinnar með fullt hús stiga. 30 stig eftir fimmtán leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×