Innlent

Nýjar rafmagnsklippur reyndust vel í Árborg

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vettvangi í gær.
Frá vettvangi í gær. Brunavarnir Árnessýslu
Rafmagnsklippur sem Brunavarnir Árnessýslu fjárfestu nýlega í komu sér vel á vettvangi harkalegs áreksturs á Gaulverjabæjarvegi í Árborg á fimmta tímanum í gær. Tveir fólksbílar skullu saman við Hraunsá nærri Stokkseyri.

Slökkvistöð Brunavarna Árnessýslu á Selfossi var kölluð út og á vettvang fóru tíu slökkviliðsmenn með tvo dælubíla með klippubúnað og tveir minni útkallsbílar með rafmagnsklippur.

Brunavarnir Árnessýslu, Sjúkraflutningar Hsu og lögreglan á Suðurlandi unnu sem ein heild á vettvangi og tók mjög skamman tíma að losa ökumennina sem voru slasaðir og fastir í bílunum. Vegna áverka og eðli slysins var ákveðið að kalla út þyrlu fyrir annan hinna slösuðu.

„Rafmagnsklippur eru léttari en mjög öflugar klippur sem Brunavarnir Árnessýslu hafa fjárfest í til að hafa í varðstjórabíl og minni hraðskreiðari bílum, einnig eru þær handhægari og léttari en hefðbundinn klippubúnaður, sem þarf dælur. Það gerði að verkum að hægt var að beita fjórum klippum og glennum og vinna á vettvangi við að losa þá slösuðu tekur enn minni tíma,“ segir í tilkynningu frá Brunavörnum Árnessýslu.

Fjölmargir komu að vinnu á slysstað í gær.Brunavarnir Árnessýslu
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út til að flytja slasaðan einstakling á Landspítalann.Brunavarnir Árnessýslu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×