Tottenham heldur í við toppliðin eftir dramatík á Wembley Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar 15. desember 2018 17:00 Eriksen fagnar sigurmarki sínu vísir/getty Það var dramatík á Wembley þegar Tottenham fékk Burnley í heimsókn en það var Daninn Christian Eriksen sem skoraði eina mark leiksins í uppbótartíma. Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson var ekki í leikmannahóp Burnley í dag, en hann er að jafna sig af meiðslum. Tottenham var töluvert betri aðilinn í leiknum, var miklu meira með boltann og voru hættulegri. Burnley sótti ekki mikið í leiknum, og allt stefndi í markalaust jafntefli. Tottenham, sem þurftu nauðsynlega á þremur stigum að halda í toppbaráttunni voru hins vegar ekki á því. Eftir mikinn barning í vítateig Burnley, náði Harry Kane að koma boltanum til Christian Eriksen, sem kláraði vel framhjá Joe Hart í marki Burnley. Lokatölur 1-0 fyrir Tottenham, og mikilvæg þrjú stig í hús. Með sigrinum halda Tottenham í við toppliðin Manchester City og Liverpool, en Tottenham er þremur stigum á eftir Liverpool sem er í öðru sæti. Liverpool á leik til góða, en sá leikur verður á morgun gegn Manchester United. Burnley er hins vegar í bullandi veseni og eru aðeins tveimur stigum frá fallsæti. Enski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti