Fótbolti

Jafntefli hjá Alfreð

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Það hefur aðeins hægst á markaskorun hjá Alfreð í Bundesligunni
Það hefur aðeins hægst á markaskorun hjá Alfreð í Bundesligunni vísir/getty
Alfreð Finnbogason og félagar í þýska liðinu Augsburg gerðu 1-1 jafntefli við Schalke í Bundesligunni í dag. Bayern München vann stórsigur.

Alfreð var í byrjunarliði Augsburg en það var félagi hans í framlínunni Michael Grogoritsch sem kom Augsburg yfir strax á 13. mínútu. Heimamenn í Augsburg leiddu 1-0 þegar komið var til hálfleiks.

Snemma í seinni hálfleik skoraði Daniel Caligiuri jöfnunarmark Schalke og tryggði sínu liði stig úr leiknum.

Alfreð var tekinn af velli undir lok leiksins.

Augsburg fer með jafnteflinu upp í 14. sæti deildarinnar með 14 stig, fjórum stigum frá botninum.

Stórlið Bayern München hefur átt í erfiðleikum í vetur og er í þriðja sæti deildarinnar, sex stigum á eftir Dortmund sem á leik til góða.

Robert Lewandowski, Serge Gnabry, David Alaba og Joshua Kimmich skoruðu mörk Bayern í dag þegar liðið vann Hannover 4-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×