Fótbolti

Griezmann frábær er Atletico komst upp að hlið Barcelona á toppnum

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Griezmann var frábær í dag
Griezmann var frábær í dag vísir/getty
Atletico Madrid heimsótti Real Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni í dag og úr varð fimm marka leikur sem endaði með sigri Atletico.



Nikola Kalinic kom gestunum í Atletico yfir á 26. mínútu eftir stoðsendingu Frakkans frábæra, Antoine Griezmann. Það var svo Griezmann sjálfur sem tvöfaldaði forystu Atletico eftir mark úr vítaspyrnu. Griezmann var að leika sinn 300. deildarleik á Spáni og hélt hann heldur betur upp á það. 



Heimamenn í Real Valladolid komu hins vegar sterkari til leiks í seinni hálfleik og minnkuðu muninn á 57. mínútu en það gerði Fernando Calero.



Skömmu síðast varð Saul Niguez fyrir því óláni að skora sjálfsmark og skyndilega allt orðið jafnt.



Það var hins vegar Griezmann sem tryggði Atletico mikilvægan sigur með marki á 80. mínútu leiksins.



Mikilvæg þrjú stig í hús hjá Atletico en liðið er nú jafnt Barcelona að stigum á toppi deildarinnar, en Börsungar eiga leik til góða á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×