Innlent

Rímnaljóð og myndlist á Suðurlandi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Rímnaljóð og myndlist fara vel saman hjá félögum í Myndlistarfélagi Árnessýslu, sem syngja ljóð um leið og málið er. Þá standa félagarnir reglulega upp frá málverkunum og syngja jólalög saman.

 

Starfsemi Myndlistarfélags Árnessýslu fer fram í gamla Sandvíkurskólanum á Selfossi, nú Sandvíkursetri, þar sem félagsmenn hafa góða aðstöðu til að mála. Í húsinu er Gallerí þar sem hægt er að skoða myndir félagsmanna en nú eru um áttatíu félagsmenn í félaginu. Tilgangur félagsins er að stuðla að framgangi myndlistar á Suðurlandi.

 

„Við erum með námskeið og þessar vinnustofur, sem gefa okkur mjög mikið og fólk kemur hingað til að mála, spjalla og svo fáum við oft gesti sem eru að skoða og spjalla við okkur, þetta er bara mjög gott fyrir samfélagið“, segir Gunnur Sigdís Gunnarsdóttir formaður félagsins.

 

 

Ásdís Hoffritz, sem býr á Selfossi er mjög virk í Myndlistarfélagi Árnessýslu. Hér er hún með mynd í vinnslu frá Eyrarbakka.Magnús Hlynur
Ásdís Hoffritz hefur málað lengi, hér er hún með mynd í vinnslu frá Eyrarbakka. En hvað eru málararnir að hugsa þegar þeir eru að mála ?



„Stundum hugsum við ekki neitt og stundum hugsum við heilmikið. Svo er það líka að hittast á kaffistofunni og ræða málin, gagnrýni myndirnar hjá hvort öðru og spjalla“, segir Ásdís.

 

Gústav Þór Stolzenwald er ekki mikið að spjalla þegar hann málar því hann fer með rímnaljóð eða stemmur um leið og hann málar verk sín.

 

„Þetta er ríma eða stemma vestan af ströndum, sem ég lærði í síðasta mánuði. Að stemma og mála í leiðinni gefur tóninn í málverkinu, það gerir það“, segir Gústav Þór.

 

Jólaskapið ræður ríkjum hjá Myndlistarfélaginu enda er staðið reglulega upp frá myndunum sem er verið að mála og jólalög sungin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×