Enski boltinn

Fjögurra leikja bann fyrir að bíta fyrrum leikmann Liverpool

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Mikill hiti var á milli leikmanna
Mikill hiti var á milli leikmanna vísir/getty
Bradley Johnson, leikmaður Derby hefur verið dæmdur í fjögurra leikja bann fyrir að bíta Joe Allen, fyrrum leikmann Liverpool og núverandi leikmann Stoke í Championship deildinni.



Atvikið gerðist eftir að Oghenekaro Etebo var rekinn af velli hjá Stoke eftir ljótt brot.



Dómarar leiksins sáu ekki bitið en það náðist á upptöku.



„Þetta gæti litið þannig út en hann beit mig ekki,“ sagði Allen um atvikið eftir leik.

 

Bæði rauða spjaldið og bitið má sjá hér að neðan.

 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×