Enski boltinn

Leeds á toppinn eftir sterkan útisigur

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Hernandez skoraði eina mark leiksins
Hernandez skoraði eina mark leiksins vísir/getty
Leeds United komst á topp Championship deildarinnar í dag eftir sterkan útisigur á Sheffield United.



Markalaust var í hálfleik og allt virtist stefna í markalaust jafntefli.



Pablo Hernandez var hins vegar á öðru máli og skoraði hann eina mark leiksins á 82. mínútu.



Mark Hernandez fleytti Leeds á toppinn, allavega um stundarsakir en Norwich getur náð toppsætinu aftur í dag með sigri á Rotherham, en sá leikur var að hefjast ásamt fleirum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×