Handbolti

Aron með eitt mark í öruggum sigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Vísir/Getty
Barcelona átti ekki í miklum vandræðum með Meshkov Brest í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag.

Börsungar keyrðu upp hraðann og leiddu með fimm mörkum í leikhléi, 22-17. Þeir héldu áfram að bæta við forystuna út leikinn og unnu að lokum níu marka sigur, 41-32.

Aron Pálmarsson fór ekki mikinn í markaskorun en hann skoraði eitt mark úr tveimur tilraunum.

Markahæstir í liði Barcelona voru Victor Tomas og Timothey N´Guessan með sex mörk hvor. Sime Ivic var atkvæðamestur gestanna með sjö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×