Sport

Gunnar sýnir frábæra danstakta á æfingu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gunnari er margt til lista lagt. Að dansa er eitt af því.
Gunnari er margt til lista lagt. Að dansa er eitt af því.
Í nýjasta þættinum af „The Grind“ með Gunnari Nelson er fylgst með venjulegum degi hjá bardagakappanum.

Dagurinn byrjar í eldhúsini þar sem byrjað er að næla sér í orku fyrir æfingu. Það leynir sér ekki að stuðið er mikið á æfingunum þar sem Gunnar sýnir meðal annars lipra danstakta.

Ýmsu þarf að sinna í aðdraganda bardaga og þennan tiltekna dag þurfti Gunnar að fara bæði í myndatöku og sjónvarpsviðtal. Það var samt tími fyrir smá tölvuleik á milli æfinga.

Gunnar berst við Alex Oliveira í Toronto næsta laugardagskvöld og bardaginn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Þáttinn má sjá hér að neðan.



MMA

Tengdar fréttir

Helmassaður Gunnar vekur mikla athygli

Gunnar Nelson birti mynd af sér á samfélagsmiðlum um helgina og óhætt er að segja að sú mynd hafi vakið verðskuldaða athygli.

Gunnar: Held að þetta verði helvíti góður bardagi

Gunnar Nelson segir að aðeins eigi eftir að ganga frá formsatriðum fyrir væntanlegan bardaga hans gegn Alex Oliveira. Stefnt er að því að þeir berjist í Toronto þann 8. desember næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×