Körfubolti

Myndaði sofandi stórstjörnur Golden State liðsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kevin Durant var alveg búinn á því.
Kevin Durant var alveg búinn á því. Skjámynd/Instagram/JBell
NBA-leikmenn spila 82 deildarleiki á tímabilinu og svo tekur við rúmlega tveggja mánaða úrslitakeppni. Á þessum tíma ferðast leikmennirnir fram og til baka um Bandaríkin og þetta tekur vissulega á.

NBA-meistarar Golden State Warriors eru nú á útileikjaferðalagi og hluti af því er að stórstjörnurnare þurfa að sitja lengi í rútum, flugvélum og öðrum fararskjótum.

Golden State spilar fimm leiki í röð á útivelli, byrjaði í Toronto í Kanada og svo liggur leiðin til Detroit, Atlanta, Cleveland og Milwaukee áður en liðið kemst aftur heim 10. desember.

Jordan Bell er bara 23 ára gamall og einn af ungu strákunum í liði Golden State. Félagið valdi hann í nýliðavalinu sumarið 2017 og hann hefur spilað með því síðan.

Bell er því á sínu öðru ári en það er ekki víst að hann hafi unnið sér inn mörg stig hjá reynsluboltum liðsins með því að birta þetta myndband hér fyrir neðan á samfélagsmiðlum sínum.

Bell var greinilega ferskari en liðsfélagar sínir en hann myndaði þá Kevin Durant, Draymond Green og DeMarcus Cousins steinsofandi í einni rútuferðinni og birti á samfélagsmiðli sínum eins og sést hér fyrir neðan.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×