Innlent

Vilja losna við sexmenningana en grípa ekki til neinna aðgerða

Sveinn Arnarsson skrifar
Lítill stuðningur er í þingheimi við sexmenningana sem hljóðritaðir voru á barnum Klaustri.
Lítill stuðningur er í þingheimi við sexmenningana sem hljóðritaðir voru á barnum Klaustri. Fréttablaðið/Anton Brink
Aðeins einn sitjandi þingmaður telur að þingmennirnir, sem sátu að sumbli á Klaustri bar þann 20. september síðastliðinn og hrak­yrtu samstarfsmenn sína og aðra þjóðþekkta einstaklinga, þurfi ekki að segja af sér þingmennsku. Þá telur 31 þingmaður að sexmenningarnir þurfi að segja af sér þingmennsku.

Þetta kemur fram í samtölum Fréttablaðsins við þá þingmenn sem náðist í í gær. Fréttablaðið reyndi í gær að ná í alla þingmennina 57 sem ekki voru að drykkju á Klaustri þetta umrædda kvöld sem hefur svo sannarlega spillt og eitrað andrúmsloftið og vinnufriðinn á þingi. Ekki náðist í sjö þingmenn af þessum 57.

Sjá einnig: Formennirnir samstíga um að boða Sigmund ekki á fundinn



Hins vegar sýnist sem svo að þingmenn séu ekki sammála um hvort þeir eigi að taka til einhverra ráða sjálfir. Talað hefur verið um að þingmenn standi upp og yfirgefi þingsal þegar einhver þeirra sexmenninganna af Klaustri kemur í pontu eða hundsi nefndarfundi sem þau sitja. Margir þingmenn lýstu því þannig að þeir væru ekki tilbúnir til að beita einhverjum eineltistilburðum sem þessum. „Maður svarar ekki ofbeldi með ofbeldi,“ sagði einn þingmaðurinn.

Ljóst er af samtölum við þingmenn að þeim er enn brugðið yfir því sem kom fram í upptökunum á Klaustri. Þingmenn lýstu stöðunni sem nokkuð þrúgandi þar sem andrúmsloftið væri í raun og veru hálf eitrað.

Átján þingmenn vildu ekki svara spurningum Fréttablaðsins um málið þótt margir þeirra væru búnir að gera upp afstöðu sína til málsins. Töldu sumir hverjir rétt að bíða niðurstöðu siðanefndar þingsins í málinu sem hefur í fyrsta sinn verið virkjuð eftir að hún var sett á laggirnar eftir Wintris-hneyksli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir stöðu sexmenninganna svo þrönga að þau eigi í erfiðleikum með að vinna vinnu sína á þingi.

„Við höfum séð á þingi og í þjóðfélaginu víðtæka fordæmingu á framferði þessa fólks og sú víðtæka andstaða sem hefur birst mun gera þessum þingmönnum erfitt fyrir með að ná fram sínum málum á þingi. Með öðrum orðum geta þau trauðla komið fram vilja umbjóðenda sinna sem kusu þau. Það er það sem þau standa frammi fyrir, þau eiga örðugt með að standa undir því sem þau voru kosin til.“

Eiríkur bendir enn fremur á að traustið á þinginu hafi hrapað í kjölfar hrunsins árið 2008 en hafi síðan vaxið hægt og rólega. Það sé alveg ljóst að þessi atburður hafi gert það að verkum að traustið hafi minnkað á nýjan leik.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×