Fótbolti

Sveinn Aron spilaði í stórsigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sveinn Aron fagnar marki með Blikum síðasta sumar
Sveinn Aron fagnar marki með Blikum síðasta sumar vísir/eyþór
Sveinn Aron Guðjohnsen hóf leik á varamannabekknum þegar lið hans, Spezia, fékk Cosenza í heimsókn í ítölsku B-deildinni í fótbolta í dag.

Sveinn Aron kom inná á 76.mínútu og lék síðasta stundarfjórðunginn.

Staðan var 4-0, Spezia í vil, þegar Sveinn Aron kom inná og reyndust það lokatölur leiksins.

Spezia er í 8.sæti B-deildarinnar með 20 stig eftir fjórtán umferðir, níu stigum minna en topplið Palermo en 8.sæti gefur sæti í umspil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×