Handbolti

Oddur fór mikinn í sigri

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Oddur Gretarsson
Oddur Gretarsson Balingen
Oddur Grétarsson var markahæstur í liði Balingen-Weilstetten sem hafði betur gegn Essen í þýsku B-deildinni í handbolta í kvöld.

Oddur skoraði átta mörk, líkt og Marcel Niemeyer í tveggja marka sigri Balingen 34-36.

Heimamenn í Essen byrjuðu betur en um miðbik fyrri hálfleiks tóku gestirnir leikinn yfir og tóku 5-0 kafla sem kom þeim í forsytu. Mestur varð munurinn sjö mörk í fyrri hálfleik, staðan var 14-16 í hálfleik.

Í seinni hálfleik héldu yfirburðir Balingen áfram og útlit var fyrir stórsigri gestanna. Á síðstu tíu mínútum náðu heimamenn þó að minnka muninn en sigur Balingen var þó aldrei í hættu þótt munurinn hafi verið kominn niður í tvö mörk í lokin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×