Enski boltinn

Pogba verður líklega með gegn Palace

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Paul Pogba
Paul Pogba Vísir/Getty
Paul Pogba ætti að geta tekið þátt í leik Manchester United og Crystal Palace um helgina, læknateymi United telur Pogba verða orðin heilan heilsu.

Pogba spilaði í gegnum meiðsli í sigri United á Juventus fyrir landsleikjahléið en gat ekki verið með í stórleiknum gegn Manchester City nokkrum dögum síðar. Hann dró sig út úr landsliðshóp Frakka vegna meiðslanna en samkvæmt heimildum ESPN er hann að verða fullfrískur að nýju.

Þá ætti Marouane Fellaini einnig að vera orðinn heill heilsu en hann var ekki í landsliðshóp Belga í leikjunum gegn Íslandi og Sviss.

Hins vegar er óvissa með stöðuna á Romelu Lukaku, Anthony Martial og Marcus Rashford.

United tekur á móti Crystal Palace á laugardaginn í fyrsta leik eftir landsleikjahléi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×