Handbolti

Sjáðu stoðsendingu Arons sem allir eru að tala um

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Vísir/Getty
Stoðsending Arons Pálmarssonar í Meistaradeildinni í handbolta um helgina var fyrir langtum lengra komna.

Aron Pálmarsson átti fínan leik með Barcelona í Meistaradeildinni um helgina en það er sérstaklega ein af stoðsendingum hans í leiknum sem hefur verið á allra vörum.

Aron skoraði eitt af mörkum helgarinnar í úttekt EHFTV eins og sjá má hér fyrir neðan en markið skoraði hann með neglu upp í þaknetið. Þetta var eina mark Hafnfirðingsins í leiknum.





Aron var valinn maður leiksins í þessum átta marka sigri Barcelona og ekki af ástæðulausu. Aron stjórnaði sóknarleik Barcelona frábærlega og átti hverja gullsendinguna á fætur annarri. Eitt skorað mark segir ekki nærri því alla söguna.  

Stoðsendingin hans inn á línuna á Frakkann Ludovic Fabregas var örugglega flottasta sending leiksins.

Leikmenn Vardar héldu að þeir væru búnir að loka fyrir sendingaleið Arons inn á línuna en Aron átti ás upp í erminni.

Aron keyrði erfiðleikastuðulinn upp úr öllu valdi þegar hann kom boltanum á hárréttan stað inn á Frakkann öfluga.

Það hefur löngum með erfiðari sendingum þegar leikmenn senda boltann án þess að horfa eða með því að senda boltann í gegnum klofið á sér. Hvað þá ef menn sameina það í sömu sendingu eins og Aron gerði.

Sem betur fer var Ludovic Fabregas líka vel vakandi, greip boltann og skilaði honum í netið. Það má búast við því að Ludovic Fabregas hafi fengið að kynnast svona sendingum á æfingum Barcelona.

Það má sjá þessa stórkostlegu stoðsendingu Arons inn á Ludovic Fabregas hér fyrir neðan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×