Handbolti

Aron í sigurliði en tap hjá Ágústi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Aron í leik með Börsungum.
Aron í leik með Börsungum. vísir/getty
Barcelona er áfram með fullt hús stiga í spænsku úrvalsdeildinni eftir 37-29 sigur á Ademar León á heimavelli í kvöld.

Staðan var jöfn í hálfleik, 17-17, en Börsungar keyrðu yfir gestina í síðari hálfleik. Barcelona er með 22 stig á toppi deildarinnar eftir ellefu leiki.

Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Börsunga úr fjórum skotum en hann átti frábæran leik fyrir spænska liðið í Meistaradeildinni um helgina.

Ágúst Elí Björgvinsson og félagar í Sävehof töpuðu gegn Redbergslids, 30-29, í dönsku úrvalsdeildinni en Redbergslids leiddi 14-11 í hálfleik.

FH-ingurinn varði ágætlega í markinu hjá Sävehof en hann endaði með um þrjátíu prósent markvörslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×