Körfubolti

Aldarfjórðungur frá tröllaleik Shaq | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Shaq var rosalegur í búningi Magic.
Shaq var rosalegur í búningi Magic. vísir/getty
Að leikmenn nái þrefaldri tvennu í NBA-deildinni gerist iðulega en strákarnir í dag eru ekki að ná þrefaldri tvennu eins og Shaquille O'Neal náði á sínum tíma.

Í dag er nákvæmlega 25 ár síðan hann átti algjörlega lygilegan leik í búningi Orlando Magic. Þá skoraði Shaq 24 stig, tók 28 fráköst og varði 15 skot. Þetta köllum við almennilega þrefalda tvennu.

Þessi frammistaða er reglulega rifjuð upp og ekki að ástæðulausu.

Sjá má helstu tilþrif Shaq úr þessum leik hér að neðan.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×