Körfubolti

Sömdu um að hann myndi ekki æfa með liðsfélögum sínum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
JR Smith fagnar með LeBron James. Nú eru þeir báðir hættir að spila fyrir Cleveland Cavaliers.
JR Smith fagnar með LeBron James. Nú eru þeir báðir hættir að spila fyrir Cleveland Cavaliers. Vísir/Getty
JR Smith er á leið burtu frá NBA-liðinu Cleveland Cavaliers en hann hefur viljað losna frá liðinu eiginlega alveg síðan að Lebron James yfirgaf Cleveland og allir titladraumar Cavaliers dóu samstundis.

Það athyglisverða við stöðu mála er hinsvegar nýtt samkomulag á milli JR Smith og Cleveland Cavaliers.

JR Smith er enn á samningi hjá Cleveland en hann samdi um það við félagið að þurfa ekki að æfa með liðsfélögum sínum. JR Smith mun æfa einn á meðan Cavaliers (og örugglega hann sjálfur) leita að leikmannaskiptum sem ganga upp.

Cleveland Cavaliers er þannig tilbúið að borga honum fyrir að vera ekki á svæðinu. JR Smith fær 14,7 milljónir dollara frá Cleveland Cavaliers fyrir þetta tímabil eða 1,8 milljarða íslenskra króna. JR Smith á síðan að fá 15,6 milljonir dollara fyrir lokaárið sitt.





JR Smith hefur spilað með Cleveland Cavaliers frá árinu 2015 og var algjör lykilmaður í meistaraliðinu árið 2016. JR Smith hefur bara skorað 6,7 stig að meðaltali á 20,2 mínútum í vetur en var með með 12,4 stig að meðaltali 2015-16 tímabilið.

Frá og með vistaskiptum LeBron James hefur JR Smith verið alveg ómögulegur. Hann hefur talað um það að vilja losna frá Cleveland og fór aldrei í neinar felur með það í viðtölum við fjölmiðla. Hann var hinsvegar farinn að ganga enn lengra í viðtölum sínum.

JR Smith sakaði Cleveland Cavaliers þannig um það að vilja ekki lengur vinna leiki til að auka möguleika sína á fyrsta valrétti í nýliðavalinu næsta sumar.

„Ég held að markmiðið sé ekki að vinna. Markmiðið er ekki að vinna eins marga leiki og hægt er. Ég held að markmið liðsins sé núna að þroska sína leikmenn og tryggja sér góðan valrétt. Ég held líka að það hafi alltaf verið planið,“ sagði JR Smith við The Athletic.

Það er því kannski ekkert skrýtið að forráðamenn Cleveland Cavaliers séu búnir að fá nóg og vilji ekki hafa JR Smith lengur á svæðinu.

Það breytir þó ekki því að Cleveland Cavaliers er og stefnir í það að vera lélegasta lið NBA á leiktíðinni. Cavaliers hefur aðeins unnið 2 af 15 leikjum sínum og er í 30. sæti af 30. liðum yfir besta sigurhlutfallið í deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×